Fréttablaðið - 09.12.2009, Page 31

Fréttablaðið - 09.12.2009, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2009 3leikur í höndum ● fréttablaðið ● ● AÐMÍRÁLSFIÐRILDI Stærð heklunálar fer eftir gróf- leika garnsins. Í fiðrildinu eru 3 litir sem við köllum A, B og C. Skammstafanir: ll. = loftlykkja kl. = keðjulykkja fl. = föst lykkja hst. = hálfstuðull st. = stuðull tvf st. = tvöfaldur stuðull Vængur 1: Fitjið upp 5 ll í lit A og tengið saman í hring. 1. umf.: (rangan): 3 ll og 4 stuðlar = 5 stuðlar sem ná yfir hálfan hringinn. 2. umf.: 3 ll, 2 st. í hvern af næstu 3 st. = 8 st. Tengið lit B. 3. umf.: Litur B. 1 fl. 1 hst., 3 st. í næsta st., 2 hst, 3 st. í næsta st., 1 hst. og 1 fl. Samt: 12. Tengið lit C. 4. umf.: Litur C. 1 ll., 1 fl., 2 fl. í næstu 2 st., 1 fl., 1 kl., 1 fl., 2 fl. 1 st., 1 tvf.st., 1 st., 1 fl. Dragið í gegn. Vængur 2: Spegilmynd af væng 1. Gangið frá endum. Búkurinn: Litur A: 10 ll, 1 fl. í 3. ll., síðan 1 kl í hinar 7. Dragið í gegn og gangið frá endum. Búkurinn saumaður ofan á væng- ina. Heimild:100 flowers to knit & crochet ● UNDIR ILJARNAR Mottu úr grófu ullarbandi er afar fljótlegt að hekla. Í þessa er notaður alíslenskur ullarþráður sem heitir Bulky lopi og er framleiddur hjá Ístexi. Hann er til í þó nokkrum litum og þeirra á meðal eru hreinir litir með dopp- um og aðrir tónaðir. Sá sem hér er notaður er einn þeirra tónuðu og sér til þess að mynstrið verði eins og skýjafar á himni eða þokuslæðingur til fjalla. Heklunálin er númer níu og aðferðin er hið sígilda fastahekl, þar sem nálinni er stungið niður í lykkju, þráðurinn dreginn í gegn, er svo sóttur aftur og dreginn í gegnum báðar lykkjurnar. Ein- faldara getur það ekki orðið. - gun ● PRJÓNAKAFFI Á HÖFN Eins og Spaugstofan benti svo smekklega á síðasta laugardag gengur mikið prjónaæði yfir Ísland og það nær allt frá ystu strönd til innstu dala. Prjónakaffi eru vel þekktar og vinsælar samkomur sem fara fram á hinum ýmsu stöðum, meðal annars á bókasöfnum landsins. Á Höfn í Hornafirði safnast til dæmis prjónelskandi einstaklingar saman í bókasafninu einn vissan laugardag í hverjum mánuði með sínar hannyrðir, skoða blöð og bækur um áhugamálið og fá sér kaffisopa. Blaðamaður Fréttablaðsins datt inn á prjónakaffið á Höfn í haust og átti þar notalega stund innan um iðnar og skemmtilegar konur. Ása Guðmunds og Siharu; bak við þær eru Birkir Snær, Ingibjörg Steins, Æsa Elína og Fríða Þrúðmars. Svo eru það Guðrún Hálfdanar, Guðný Eiríks, Árdís Halldórs, Guðný Svavars, Guðbjörg og Heiður Vilhjálmsdætur og Halla Bjarna. FRÉTTABLAÐIÐ/GUN *Anna Silfa - www.garnbudin.is *Anna Silfa - www.garnbudin.is Prjónað - í dagsins önn Hún er komin út! Þessi bók er snilld að mínu mati. Kemur mér í gott og rómantískt skap. Uppskriftirnar eru bæði smart og koma hugmyndafl uginu af stað. Í þessari bók er eitthvað fyrir alla, konur sem karla á öllum aldri. Hönnunin á bókinni er afar falleg og langar mann að takast á við öll verkefnin í henni. Nýstárleg hönnun og munstur sem maður bara verður að prófa ! Það skemmir ekki fyrir að hægt er að velja úr smáum og stórum verkefnum.* Spennandi bók sem ég get skoðað aftur og aftur. Prjónað á börn Bókin er glaðleg og skemmtileg með uppskriftum sem börnunum líkar. Uppskriftirnar eru í stærðum 2 - 12 ára, jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna. Falleg og smart snið sem kitla og hvetja mann til að hefjast handa strax! Það sem heillar mig mest við bókina er hvað uppskrift- irnar eru settar einfaldar fram, sniðin jafnt fyrir stelpur og stráka og einnig úrvalið af hversdags og fínni fatn- aði. Afar sígild og eiguleg bók sem er ómissandi í mínu hannyrðabókasafni.* Ég mæli með því að lesa formálann í bókinni þar sem höfundurinn talar til þín á sinn einlæga hátt. Vandaðar prjónabækur – frá Hugmyndabanka heimilanna Fullt verð 3.990 kr. Fullt verð 3.990 kr. Skráðu þig í Hugmyndabanka heimilanna og fáðu þessar frábæru bækur saman á aðeins 2.880 krónur. Skráðu þig núna á www.edda.is/klubbar eða hringdu í síma 522-2000 Dalvegi 18, Kóp. - Sími 568 6500 - www.fondra.is - Opið 10-18 virka daga, laugardaga 11-16

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.