Vikan


Vikan - 16.04.1981, Síða 63

Vikan - 16.04.1981, Síða 63
Af ferðalögum Kíbenhavn-Gedser Warnemíipde - Berlin Malmo - Trelleborg Sassniti- Berlin Krus2 - Hamburg K^benh.-Rddby-Hamburg Hamburg- Hannover- Bérlin Til Niirnberg 5 ferja = járnbraut = þjóðveguT = br'au.'t Virkilega fjölbreytt og skemmtileg ferðaáætlun gæti litið svona út. Tekinn á leigu bíll í Kaupmannahöfn. Ekið um Austur-Þýskaland til Berlínar, áningarmöguleikar eru margir. Síðan frá austurhlutanum til Vestur- Berlínar. Þaðan suðvestur á bóginn til Rínarlanda og svo aftur til baka um Jótland. Áhugamenn um léttvín heimsækja auðvitað vínbúgarða í Rínarlöndum og fá að prófa framleiðsluna. Við Mosel og Rín er hvítvínspressan þarfaþing. Worms sem Marteinn Lúther hóf sigur- för sína gegn kaþólsku kirjunni. árið 1521. Nú væri kjörið að ferðast með ferju eftir Rín, til dæmis frá Worms til Koblensz: Siglingin eftir Rín er afskaplega rómantísk í sjálfri sér. en viðkoma í nokkrum þorpum við Rin, til dæmis Eltville, Östrich og Rtides- heim — er eiginlega boðorð fyrir þá sem vilja leyfa sér þann munað að prófa nokkrar af þeim ágætu víntegundum sem þar eru á boðstólum. Að lokinni bátsferð eftir Rin — og auðvitað væri hægt að fara þennan spöl á nokkrum dögum — komum við aftur til Koblenz. Nafn þeirrar borgar er ekki langsótt, það er dregið af latnesku rótinni confluentes, sem merkir ármót, í þessu tilfelli mót ánna Mosel og Rinar. Vegna legu sinnar var Koblenz og er mikilvægur verslunarstaður. sérlega fyrir vínhéruðin i nágrenninu. Þarna eru því margar gamlar byggingar, sem stóðu eftir heimsstyrjöldina, og ýmsar minjar um liðna tíð. Til Berlínar Fyrir síðari heimsstyrjöldina var Berlín höfuðborg Þýskalandsríkis. Núna er borgin táknræn fyrir skiptingu þýsku þjóðarinnar í tvær fylkingar, og í raun skiptingu alls heimsins I andstæðar fylkingar. Berlin er inni i miðju Þýska alþýðu- lýðveldinu (eða Austur-Þýskalandi, eins og það er almennt nefnt). Vesturhluti borgarinnar tilheyrir ekki Vestur-Þýska- landi. hann er enn i dag hernámssvæði Vesturveldanna. Þar ráða Bretar. Bandaríkjamenn og Frakkar. Þessi vesturhluti nefnist almennt Vestur- Berlín og hinn margumtalaði Berlínarmúr umlykur hann. Múrinn var reistur umhverfis Vestur-Berlín. hann markar landantærin milli austurs og vesturs. Ferðamenn geta farið á milli austur- og vesturhlutans að vild. Og þótt Vestur-Berlin hafi fyrr á árunt þénað sem nokkurs konar útstillingargluggi til að laða fólk vestur á bóginn er austur hlutinn orðinn það glæsilegur að hann þénar allt eins vel sem útstillingargluggi fyrir Alþýðulýðveldið. Þvi er sjálfsagt að menn skoði báða hluta Berlínar. ef þeir á annað borð gera sér ferð þangað. Þótt Vestur-Berlín sé umgirt múrnunt þýðir það ekki að þrengt sé að íbúunt þar. Það. er helst hægt að fá innilokunarkennd i einu af nýjum íbúða hverfum Vestur-Berlínar, nokkurs konar risablokk sem hýsir um 50.000 manns. En vesturborgin nær yfir stórt svæði. þar eru stöðuvötn. stórir skemmti garðar og jafnvel sveitabæir. Menningarlíf blómstrar I báðum hlutum Berlinar þótt með ólikum hætti sé. 1 Vestur Berlin er fjöldinn allur af leikhúsum, tónlistarhöllum, lista söfnum, kvikmyndahúsum og sögu- frægum byggingunt. Sá sem vill fylgjast með því sem nýstárlegast er i listum í Evrópu verður ekki fyrir vonbrigðum i Vestur-Berlin. Menningarlif er með nokkuð öðrum hætti í austurhluta Berlínar en arfurinn er sameiginlegur báðum þýsku rikjunum og þess vegna er margt líkt með vestri og austri. Til dæmis er leiklist i blóma báðum megin og rétt að líta á leik sýningu í Berliner Ensamble leikhúsinu í austurhlutanum. Sá víðfrægi og rómaði höfundur Bertolt Brecht starfaði þar um árabil, eftir heimsstyrjöldina siðari. Leikrit hans þykja sigild I Vestur- Þýskalandi líka og ekki sjaldan verið að sýna sama Brechtleikritið bæði fyrir austan og vestan. Hægt er að finna óendanlega margt að gera og skoða í báðum hlulurn Berlinar. Mönnum bjóðast útsýnisferðir með áætlunarbílum eða bátum, ýmiss konar sögusöfn (til dæmis Pergamon-safnið í austurhlutanum, sem hýsir minjar frá öldunum fyrir Kristsburðl og ekki síst skemmtana eða næturlífið. Austur-þýska efnahagsundr- ið Oft er talað um að viðreisn Vestur- 16. tbl. Vikan 63

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.