Vorið - 01.12.1969, Page 20

Vorið - 01.12.1969, Page 20
INNINN EFTIR SIGURÐ Ó. PÁLSSON (Þátt þennan samdi höíundur í sam- vinnu við börnin í 10. og 11. bekk barna- skólans í Borgarfirði eystra síðastliðinn vetur til sýningar á litlu-jólunum.) Persónur: Nonni, Jonni og Konni. (Þegar leikurinn hefst sitja Nonni og Jonni við borð og tala saman.) JÓLASVE JONNI: Mikið afskaplega hlakka ég til jólanna. NONNI: Ég hlakka líka mikið til þeirra. JONNI: Það er nú gott að fá jólafríið, þá þarf maður ekkert að lesa og ekk- ert að reikna. NONNI: Ætlarðu ekki að lesa jólabæk- urnar? JONNI: Jú, það ætla ég að gera. En ég ætla ekki að lesa landafræðina, Is- landssöguna eða aðrar skólabækur. NONNI: Það ætla ég ekki að gera held- ur. Kennarinn minn segir að við þurf- um ekki að læra í fríunum en í þess stað eigum við að vera dugleg í skól- anum. JONNI: Það verður áreiðanlega gaman á morgun. NONNI: Já, þá verða litlu-jólin í skól- anum. JONNI: Hvað skyldi nú verða lil skemmtunar? NONNI: Ætli við fáum ekki að heyra jólasögu? JONNI: Jú, og svo fáum við jólapóst- inn. Eg held að póstkassinn sé alveg að verða fullur. NONNI: í fyrra átti ég sjö kort í jóla- póstinum. JONNI Og ég fékk átta. NONNI: Við fáum áreiðanlega fleiii kort núna. JONNI: Skyldi ekki koma jólasveinn í heimsókn til okkar á litlu-jólunum. NONNI: Það getur vel verið. Það væri gaman. JONNI: Manstu ekki eftir litlu-jólunum, þegar við vorum í fyrsta bekk? Þa kom jólasveinn. NONNI: Jú, ég man vel eftir því. JONNI: Það var hann Kertasníkir. NONNI: Já, hann sagðist heita það. JONNI: Hann hét Kertasníkir og kom ofan úr fjöllum. NONNI: Heldur þú, að þetta hafi verið raunverulegur jólasveinn? JONNI: Já, auðvitað. Hann sagði það sjálfur. Hann talaði við okkur og sagðist eiga heima uppi í Vatnajökli- NONNI: Veiztu ekki hver þetta var? JONNI: Jú, þetta var hann Kertasníkir- Hann sagði okkur sögur og söng °S hló svo að það hristist á honum stóra skeggið. 162 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.