Æskan - 01.09.1976, Qupperneq 12
JMum Sólskinsdagar
í dag er sólskin í Vestmannaeyjum, og þegar Ósk
kemur heim, stendur mamma í dyrunum og brosir.
Hún er eitthvað undirfurðuleg á svipinn, það er sýni-
lega leyndarmál á ferðinni og það skemmtilegt. Þeg-
ar Ósk, sem er 11 ára, kemur nær kallar mamma og
segir: „Veistu bara hvað, það var hringt til okkar áð-
an og tilkynnt að þú hafir unnið 1. verðlaun í verð-
launagetraun Æskunnar og Flugleiða." Ósk er mjög
undrandi og jafnframt glöð. Hún spyr mömmu hvort
hún megi fara og mamma segir: ,,Að sjálfsögðu máttu
fara, Ósk, það er bara eftir að tala við hann pabba.“
Og síðan kyssir hún Ósk á kinnina og óskar henni
til hamingju með vinninginn. Og Ósk litla 11 ára
hleypur út í sólskinið til að fara í „teygjó".
Vestur í Bolungarvlk er líka gott veður þennan dag
og þegar síminn hringir heima hjá Rögnvaldi þá ans-
ar Guðrún systir hans. Þetta er langlínusamtal. Henni
er tilkynnt að Rögnvaldur hafi unnið til Svíþjóðar-
ferðar. Sjálfsagt hefði Guðrún sjálf viljað fara slíka
ferð, en vinningur er nú einu sinni vinningur og þe9'
ar Rögnvaldur, sem er 12 ára, kemur heim úr tónlist-
arskólanum, þar sem hann er að læra á p'anó, segir
Guðrún honum frá viðtalinu. Rögnvaldi verður bilt við
og þó að hann sé venjulega matlystugur, þá hefur
hann enga lyst á matnum þennan dag. Siðan hefst
undirbúningurinn. Rögnvaldur er bæði í tónlistarskóla
og’ barnaskóla og það eru nokkur próf eftir. Það er
í mörg horn að líta. í dag á að halda tónleika, en
Rögnvaldi gengur ekki sérlega vel. Hugsunin u01
Stokkhólmsferðina gerir honum ómögulegt að ein-
beita sér.
Þau tvö hlutu fyrstu verölaun f verölaunagetraun Flugleiöa °9
Æskunnar 1976: Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir, 11 ára frá Ves-
mannaeyjum, og Rögnvaldur Guömundsson, 12 ára frá Bolung^
arvík. Hér eru þau komin um borð í Boeing-þotuna Gullfaxa
leið til Stokkhólms.
ÆSKAN - Tilkynnið vanskil og bústaðaskipti strax!
10