Æskan - 01.09.1976, Page 36
AÐ TAKA Á MÓTI
SLÁTRINU
Þegar sláturs er von eru allir
pottar, balar, fötur og brúsar þveg-
ið sem best og skolað úr heitum
vötnum. Hn far, nálar, saumgarn og
gisið léreft, þvegið og soðið, er haft
tilbúið í eldhúsinu. Rúgmjöl, hveiti,
haframjöl, salt, pipar og laukur er
einnig haft við höndina, svo allt
geti gengið sem best.
Þegar slátrið kemur heim er hið
fyrsta verk, sem gera þarf, að salta
blóðið. Lokaður hnefi af salti í hvert
kindarblóð.
BLÓÐMÖR
Blóðið er mælt og þvi hellt gegn-
um sigti í balanum, sem hræra á
i. Einn kaffibolli af vatni er látinn
móti 11/3 I af blóði. % rúgmjöl og
1/4 haframjöl er hrært út í blóðið
og jafnað vel þangað til sleifin
stendur ein, þó maður sleppi henni
snöggvast. Mörinn, sem er brytjað-
ur og kirtlar teknir frá, er látinn út
í eftir vild, einnig rúsínur í suma
keppina. Ráðlegast er að láta ekki
rúsínur í þá keppi, sem á að súrsa.
Keppirnir eru fylltir að % og saum-
að fyrir þá, látnir ofan í sjóðandi
saltvatn og látnir sjóða í 3—31/4
tíma. Bæta þarf vatni við og við
í pottinn (heitu). Stinga þarf á
keppina svo vömbin springi ekki.
Keppunum er raðað á fjöl eða borð
til að kólna. Venjulega gengur af
blóðinu þegar búið er að fylla upp
í keppina og eru þá saumaðir
léreftspokar. Þá má næstum fylla
og binda vel fyrir þá, en mjöli er
betra að bæta í blóðið, sem í þá
er látið. Pokarnir eru soðnir í 4
tíma, dálítið kalt vatn og þeim flett
af blóðmörnum strax. Keppirnir eru
geymdir í vatni með örlitlu af ediki
út í.
LIFRARPYLSA
Lifrin og nýrun eru þvegin vel og
himnur teknar af, skorin í bita og
hökkuð 2—3 í vél. 1/2 I mjólk og
ögn af vatni er blandað með 1/2
litlum bolla af salti móti hverri lifur.
Þessu er hrært út í lifrina og 34
rúgmjöl og 14 hveiti jafnað vel
saman við. Mörinn látinn í eftir geð-
þótta. Þetta er falið upp í vinstrarn-
ar og langana, og poka ef þörf
gerist, og soðið í 2%—3 tíma.
Langarnir ekki svo lengi. Sumum
þykir gott að láta ögn af kúmeni í
lifrarpylsuna.
Bragðið á hrárri lifrarpylsu til
þess að vita hvort hún er mátulega
sölt. Hún þarf að hrærast nokkuð
þykk.
Sláturtíðin er byrjuð.
Nógur góður og hollur matur.
ÆSKAN - Munið hina stóru bókaskrá blaðsins fyrir árið 1976*