Kyndill - 01.03.1934, Page 8

Kyndill - 01.03.1934, Page 8
Kyndill Ríkisauðvald ríkisrekstur af þjóðartekjunum. Starfsorkan er vara, sem er verð- lögð eftir markaðsgengi og verkamaðurinn er launþegi. Reynsla þeirra 15 ára, sem liðin eru síðan sovétstjórnin vann sinn pólitízka sigur í Rússlandi og trygði sér völdin, hefir sýnt okkur hvernig hagsmunabarátta stétt- anna heldur áfram, þó að undirstéttin hafi pólitísk yfir- tök, og enn fremur hvernig átökin milli nýja og gamla skipulagsins hafa birzt í millibilsástandinu — skipulagi .ríkisauðvaldsins. Eftir nokkurra ára „stríðskommúnisma", sem ennpá er rekinn af flestum deildum III. Internationale utan Rússiands, par á meðal hér á landi, hurfu rússnesku leiðtogarnir (árið 1921) að hinni svokölluðu NEP-stefnu, p. e. nýrri stefnu á fjármálasviðinu, sem gaf einkaauð- valdinu meira olnbogarúm en verið hafði. Síðar var gerð tilraun að nálgast socialismann aftur meir en áður með 5 ára áætluninni. Síðustu árin hefir alt gengið í bylgjum. Ríkiseign á jörð er orðin veruleiki og samyrkjan breiðist ört út, en frelsi bóndans til verzlunar hefir fengið nýja viður- kenningu. Hvað verkamennina snertir, hefir próun síðustu ára rökstutt pá kenningu Karls Marx, að starfsorkan væri vara — markaðsvara. Sovétstjórnin undir handleiðslu Stalins hefir umskipulagt launakerfið pannig, að launa- mismunur verkamannahópanna hefir aukist einmitt með hliðsjón af markaðshorfum og sölumöguleikum. Við petta bætist svo, að áhrif verkamannanna á framleiðsl- una á hverjum vinnustað hefir farið pverrandi í Rúss- <6

x

Kyndill

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kyndill
https://timarit.is/publication/386

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.