Kyndill - 01.03.1934, Page 13

Kyndill - 01.03.1934, Page 13
Ríkisauðvald ríkisrekstur Kyndill í fyrrnefndri bók (Klofningur auðvaldsins) skýrir Otto Leichter þýðingu og tilveru ríkisauðvaldsins á þennan hátt; Þegar ríkið leggur hlutafé í banka, veitir honum ríkisábyrgð og annan fjárhagslegan stuðning, vegna þess að bankinn er ekki lengur starfshæfur vegna álits- hnekkis og fjárhagslegs taps einka-auðvaldsins (sbr. tslandsbanka sáluga). Þegar ríkið stýrir fjárhagslegum samböndum og viðskiftum við önnur ríki, annaðhvort með einkasölum eða öðrum víðtækum ráðstöfunum, er grípa inn í alþjóðaverzlunina, vegna þess að gamla skipulagið, venjuleg undirstaða auðvalds-verzlunarhátt- anna hefir brugðist, reynst ónothæft. (Verzlunarsamn- ingar með „beztu-kjara“-ákvæðum o. þ. h.) — Þegar ríkið verður að grípa inn í og gera ráðstafanir um vöruverð, — án þess þó að koma á raunverulegri skipulagningu um skiftingu lífsgæðanna, — að eins vegna þess, að einokunarhringir auðvaldsins upphefja reglur eða lögmál einka-auðvaldsins um verðmyndun. — Þegar ríkið verður að hlaupa undir bagga : meö einkafyrirtækjum, vegna þess að rekstursstöðvun er ómöguleg nema með gífurlegu verðmætis- og fjár-tjóni. — Þegar alls konar fyrirtæki og stofnanir komast ’,á þennan hátt undir opinbert eftirlit og stjórn og þeim fer ávalt fjölgandi, og jafnframt eru fjárhagslega þýð- ingarmikil atriði, og áhrif á stjórn fjármálanna dregin meir og meir úr höndum einstakra auðmanna undir stjórnarhatt ríkisins. — Þegar fjárhagslegir örðugleikar 11

x

Kyndill

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kyndill
https://timarit.is/publication/386

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.