Kyndill - 01.03.1934, Page 28

Kyndill - 01.03.1934, Page 28
Kyndill Kosningarnar í sumar fyrir fé bankans falskar ávísanir í greiðaskyni við eitt stærsta okurfyrirtækið í Reykjavík. Á sama tíma eða nokkru fyr í vetur komst það upp um starfsmann í útibúi Otvegsbankans í Vestmannaeyjum, að hann hafi i mörg undanfarin ár dregið sér af fé bankans svo stórkostiega, að tugum jmsunda nemur. Fleira mætti telja þessu skylt, sem gerst hefir innan bankaveggjanna. Og þetta hefir viðgengist óáreitt þrátt fyrir þótt búið sé að greiða úr ríkissjóði um J60 þúsund krónur til æftiriits með fjárstofnunum landsins. Og við hverju er að búast með bankaeftirlitið, þegar þess er gætt, að eftirlitið var falið Jakob MöIIer að undangengnum hrossakaupum milli Framsóknar- og íhalds-manna. Allir vita, að Jakob var óhæfur í starfið og embættið stofn- að sem bitlingur fyrir hann. Enda hefir Jakob sjálfur ekki einu sinni reynt að hafa eftirlit með bönkunum, en látið sér vel líka að taka laun fyrir ekkert starf. Tvö eru þau tímabil auðkend af fjársvindli og emb- ættisvanrækslum, sem jafnan munu minnisstæð. Fyrra tímabilinu lauk 1927, þegar íhaldsflokkurinn hröklaðist frá völdum. Þá komust upp mörg og stór fjárdráttar- mál og vanræksla og svik hjá ýmsum embættismönnum (Einar M. Jónasson). Pá komst upp um sjóðþurðir í opinberum stofnunum (Brunabótafélagið). Og þá kom líka fram skýrt og greinilega óhæfileg meðferð á spari- fé landsmanna í Islandsbanka, er Iauk með því, að bankinn varð að loka. Hafði hann þá tapað svo stór- kostlega á hinum og öðruin viðskiftamönnum sínum, sem margir voru prettvísir og sviksamir (Sæm. Hall- 26

x

Kyndill

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kyndill
https://timarit.is/publication/386

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.