Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1919, Side 102

Skírnir - 01.01.1919, Side 102
Skírnír] Rittregmr. 18 fengiat um ymsa a'ðra, sem ritað hafa á eriendum málum og það útbreidd ágætisrit og viðurkend á sínu sviði, engu síður en rit skáldanna á sínu, t. d. rit Finns Jónssonar og Þorv. Thoroddsens. Og á hvaða rökum er það eiginlega reist, að gera í þessu sambandi upp á milli þess, þó skrifuð væri t. d. á dönsku söguleg skáldsaga, bókmentasaga eða meuningarsaga um sama tímabilið? En hvað svo sem þessu líður, er það auðvitað æskilegast, að ef rithöf. geta einhverra hluta vegna ekki frumritað bækurnar á móð- urmáli sínu, verði reynt að snara þeim þangað sem fyrst. Og fyrir skáldritaliöf. að minsta kosti, ætti þetta að vera tiltölulega auðvelt, ef þeir fá á annað borð nokkurn útgefanda. Því áð það er öllum hag- ur, lesendum, höf. og útgef., að bækurnar komi samtímis út á báð- um málunum. Og þá mættu ákúrurnar fyrir ættjarðarsvikin fara að hætta. íslenzkum bókmentum veitir ekki af að halda öllu sínu til haga. Því að þrátt fyrir alt er ekki ólíklegt að einhvern tíma rísi deila milli ísl. og danskrar bókmentasögu um »eignarréttinu« á íslend- ingunum. En þá er of seint að iðra þess, að hafa sjálfur smíðað vopnin í liendur andstæðinganna. V. P. G. Insta þráin (Den store Hnnger) eftir Jolian Bojer. Þegar eg las ritdóm Sigurðar mag. Guðmundssonar um bók þessa, sem er lofgrein frá upphafi til enda, datt mór allur ketill í eld. Eins og aðrar bækur þessa höfundar, er skáldsaga þessi snildarverk, hvað efni og framsetning snertir, ef stefna bókarinnar eða lífsskoðun væri ekki afar bölsýn og varhugaverð. Hvað vill höfundurinn syna og sanna? Bersýnilega sama og Kristján Jónsson kvað: »Lífið alt er blóðrás og logandi und, sem læknast ekki fyr en á aldurtilastund«. Þetta bölsýni er, sem betur fer, ekki allra, — og heilar þjóðir t. d. Forngrikkir hafa ekki þekt það, og venjulega þekkir ekki unga fólkið þessa lífsskoðun, ef það ekki hlær að henni, enda má fullyrða að þúsundir gamalla manna, karla og kvenna, sem alla æfi hafa átt vlð mótlæti að búa, hafa eitthvað sér til huggunar, sem gerir líf þeirra bærilegt, eins og Eglll Skallagrímsson sem huggaði BÍg við ástgjöf guðanna, er hann kvað: Þó hefir Míms vinr mér of fengnar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.