Skírnir - 01.01.1927, Page 106
SkirnirJ
Veðrátta og veðurspár.
99
hryðjum. Á Austfjörðum er vestan hvassviðri og heiðskírt
veður. í Skotlandi og Færeyjum er hitinn ennþá um 10
stig, svo að þangað er kaldi loftstraumurinn ekki kominn.
Fremri takmörk hlýja loftsins eru um suðvestur-Noreg en
skúralínan liggur milli íslands og Færeyja og þaðan suð-
vestur í haf. Er nýr sveipur að myndast á henni, nokkru
fyrir norðan Azoreyjar og þannig gengur jafnan koll af kolli.
III.
Veðurhéruð. Þess var getið hér að framan, að
veðráttan fái að miklu leyti svip sinn eftir því, hverrar
ættar loftstraumar þeir eru, sem leggja leið sína um landið.
Vér höfum einnig séð, hvernig veðrið hagar sér á Vestur-
landinu að vetrinum, þegar lægðirnar fara norður Græn-
landshaf. Þá streymir kalda loftið að landinu úr suðvestur
og vesturátt, en hlýnar svo mikið á leiðinni yfir íslaust og
fremur hlýtt haf, að sjaldan verður mikið frost með því
veðurlagi. Útsynningsveðráttan nær sér aðeins á Vestur-
landi og vestan til á Norðurlandi. Á austanverðu Norður-
landi og Austfjörðum stendur vestanáttin af landi og fylgja
henni hreinviðri og oft talsvert mildara veður en vestan-
lands. Verstu vetrarhríðarnar á Norðurlandi konia oftast
af því, að stormsveipar fara austan með sunnanverðu landi
og síðan norður með Austfjörðum. Þá veltur íshafsloftið
suður með austurströnd Grænlands því nær beint yfir
landið, en auðvitað er það allmisjafnt, hve kalt er þar norð-
ur í höfunum. í slíkri veðráttu er því nær æfinlega úr-
komulaust og bjart veður sunnan hálendisins (sbr. 1 mynd
og veðurlagið 23. okt. 1926). Stöðugasta vetrarveðráttan
er oft með austanátt, þegar víðáttumikil lægð hefur sezt
að yfir hafinu fyrir sunnan land. Úrkoma er þá helzt á
Suðausturlandi en þurviðri á Vestur- og Norðurlandi. Stund-
um fylgja austanáttinni allmiklir kuldar, en oftar þó milt
veður svo að hitinn helzt um 0 stig víðast á landinu, enda
þótt loft sé léttskýjað dögum saman. — Fer þetta allt eftir
þvi, hvort kaldir eða hlýir loftstraumar liggja um Bret-
landseyjar og íslandshafið (milli Noregs og íslands) á sama
7*