Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1905, Blaðsíða 127
99
ton herforingi sveitina þá til öruggrar framgöngu og.
var þá hlaupið fram all-langa leiö. En þar kom, að'
hún stóð í dæld nokkurri með knédjúpu vatni, en
skógar og hæðir umhverfis. Var þar allmargt af Ind-
íánum og gægðust þeir fram undan trjánum og skutu
hver í kapp við annan á hersveitina, sem stóð í poll-
inum, þreytt og móð eítir hlaupin. Engu síðar veitti
hún hraustlega viðnám og sendi Indíánum kúlnahríð
all-harða inn í skóginn. Stóð orusta þessi í þrjár eða
fjórar klukkustundir. Hörfuðu þá Indíánarnir lengra
inn í skóginn, en hermennirnir sóttu á eflir þeim með
ópi og eggjunarorðum, þangað til herlúðurinn var
þeyttur og þeir kallaðir til baka aftur, en þá sóttu
Indíánar aftur á eftir þeim. Skeytti hersveitin þeim
þá ekki, en færði sig upp úr dældinni og vatninu út á
sléttur nokkurar lengra frá skóginum og nam þar
staðar, þegar hún var svo langt komin, að kúlur óvin-
anna náðu henni ekki. Fjórir eða fimm menn féllu
en 40 særðust og sumir til ólífis. Enginn Islending-
anna varð sár. Þetta var við Fish Creek. Þar var
var legið í herbúðum hálfan mánuð. Beið Middleton
þar eftir skotvél einni (Gatling Gun), er von var á
frá Bandaríkjunum. Að þeim tífna liðnum var hún
komin og með henni Howard, höfuðsmaður úr her
Bandamanna. Var þá haldið tafarlaust frá Fish Creek
til Batoche, sem var aðalaðsetur Riels. Varð þar bar-
dagi allharður og þótti þá skotvélin Howards koma að
góðu haldi, enda var hægt að hleypa úr henni 100
skotum á hverri mínútu. Fóru kynblendingar þar al-
gjörlega halloka eins og búast mátti við, en af mönn-
um Middletons féll að eins einn, en 6 urðu sárir, og
var enginn þeirra frá Winnipeg. Þetta var laugardag-
9. maf. En af og til var þarna barist í fjóra daga og
féllu þá átta af mönnum Middletons og voru tveir
þeirra frá Winnipeg, en 42 særðust, Meðal hinna
særðu var einn Islendingur, Magnús Jónsson. Var