Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Blaðsíða 103
ALMANAK
103
í Winnipegosis.
10. Jón Johnson, bóndi að Hvammi í grennd við Riverton. Fædd-
ur að Gilsbakka í Húnavatnssýslu 7. jau. 1884, sonur hjónanna
Jóns Jónssonar og Helgu Guðmundsdóttur. Kom til Canada
tveggja ára að aldri með foreldrum sínum.
13. Ólafur Ólafsson, að heimili sínu í Bay Ridge, New York.
Fæddur 13. febr. 1858. Foreldrar: Ólafur bóndi Jónsson á
Víðivöllum í Staðardal í Steingrimsfirði og seinni kona hans
Valgerður Björnsdóttir bónda á Bjarnarnesi í Nessveit. Fluttist
til New York, eftir fimm ára dvöl í Englandi, árið 1887. Kunn-
ur athafnamaður. Meðal barna hans eru Rev. Ilarold S. Ólafs-
son, New York, og Stanley T. Ólafsson, íslenzkur vara-ræðis-
maður í Los Angeles.
16. Guðni Ólason, að heimili dóttur sinnar, Mrs. B. Björnsson, i
Piney, Man. Fæddur 26. júní 1846 á Útnyrðingsstöðum á Völl-
um í Suður-Múlasýslu, sonur hjónanna Óla Isleifssonar og
Sólnýjar Guðmundsdóttur. Kom vestur urn haf 1887; nam
fyrst land í grennd við Akra, N. Dak., og síðar við Vita, Man.,
og bjó þar til 1911.
16. Thorgils Johnson, á Almenna sjúkrahúsinu í Winnipeg. Hann
var 65 ára að aldri, sonur Jóhannesar Johnson og Guðrúnar
Andrésdóttur úr Laxárdal í Dalasýslu. Kom með þeim til
Vesturheims 1883; áttu þau heima fyrstu fimm árin í Nýja
íslandi, en síðan í Winnipeg.
20. Landnámsmaðurinn Narfi Vigfússon, að Tantallon, Sask., 84
ára að aldri.
22. Anna Soffía Kristjánsdóttir Sigfússon, ekkja Jóns Sigfússonar,
að heimili tengdasonar síns, Guðna Stefánssonar, að Lundar,
Man. Fædd að Látrum við Eyjarfjörð 28. nóv. 1854. Foreldrar:
Kristján Jónsson og Dýrleif Jóhannesdóttir. Kom til Vestur-
heims 1882 og fluttist í Álftavatns-nýlendu með manni sinum
1887 og voru þau meðal fyrstu landnema þar.
24. Þorbergúr Halldórsson, að elliheimilinu “Betel” að Gimli, Man.
Fæddur 2. sept. 1865. Foreldrar: Halldór Jónsson, frá Mið-
vatni í Skagafirði, og Ingibjörg Jónatansdóttir, frá Litla-
Árskógi í Eyjafarðarsýslu. Kom til Canada um aldamótin og
var landnemi í Sask.-fylki.
26. Þórður Bjarnason, að heimili sínu í Selkirk, Man. Fæddur að
Vörum í Garði, í Gullbringusýslu, 18. júní 1868. Foreldrar:
Bjarni Hannesson, ættaður úr Rangárþingi, og Helga Þórðar-
dóttir. Fluttist vestur um haf aldamótaárið og hafði síðan verið
búsettur í Selkirk.
29. Ásbjörn Eggertson, á sjúkrahúsi í Winnipeg. Fæddur á Kol-
beinsstöðum, í Kolbeinsstaðahreppi , Snæfellsness- og Hnapp-
adalssýslu, 19. júní 1872. Foreldrar: Eggert Guðnason og
Ástríður Þorvaldsdóttir. Fluttist til Canada 1889 og átti lengst-
um heima í Winnipeg. Áhugamaður um félagsmál, sérstaklega