Afturelding - 01.01.1981, Blaðsíða 23

Afturelding - 01.01.1981, Blaðsíða 23
Látið ekki blekkjast, hann öskrar enn Afríkubúar reka búfénað sinn í byrgi á kvöldin, til verndar gegn villidýrum. Byrgin eru útbúin úr trjádrumbum, þyrnirunnum o.fl., og eru um þriggja metra há. Þau veita góða vörn gegn ljónum og öðr- um villidýrum. En ljónin deyja ekki ráðalaus. Þegar náttar gengur karlljónið vindmegin við byrgið og lyktin af því hræðir búfénaðinn. Skepnurnar taka að æða um og stundum brjótast þær út úr byrginu af hræðslu. Þá bíður ljónynjan hlémegin við byrgið og velur sér feitt naut úr hjörðinni til að gæða fjöl- skyldu sinni á. Karlljónið fær sér gómsætustu bit- ana fyrst, svo kemst frúin að. Síðan koma hvolp- arnir, og ef einhver afgangur er sjá hýenur og gaupur um hann. Nautgripirnir eru auðæfi sveitafólksins og það bæði hatar og hræðist ljónin. Ljónin höfðu gert usla í einu þorpi og þorpsráðið var kallað til fundar. Gömlu vitringamir, sem vissu næstum allt, sátu í innsta hring. Yngri mennirnir, sem voru heldur fákunnugir, stóðu utan hringsins og þögðu. Konurnar, sem ekkert vissu (!!!), voru langt í burtu. Nú átti að ákveða örlög ljónanna. Gamall, vitur rnaður stóð upp og taldi best að stofna til vinskapar við ljónin. Hinir vitru mennirnir voru þessu sam- mála. Ungur maður rétti upp hendi og bað um orðið, en honurn var sagt að hafa hægt um sig, því að hann vissi svo fátt. Gamli maðurinn sagði: „Við skulum binda geit við tré sem fórn og þá verða ljónin vinir okkar.“ Um kvöldið voru mörg augu á gægjum til að fylgjast með ljónunum háma í sig geitina og allir fóru ánægðir að sofa. En kvöldið eftir léku ljónin gamla leikinn aftur. Þau trylltu nautgripina og veiddu stórt naut í matinn. Aftur kom ráðið til fundar. Gömlu, vitru mennirnir í innsta hring töluðu. Ungu mennirnir, sem ekki vissu margt, stóðu ut- ar. Og konurnar, sem eru svo fávísar (!!!), kíktu út úr kofunum. Aftur bar gamli vitringurinn upp bráðsnjalla hugmynd: „Sjáið til! Ljónin móðguðust af því að við gáfum þeim svo lítilmannlega gjöf. Ef við ætlum að gera þau að vinum okkar, verðum við að gefa þeim stórt naut.“ Allir vitru mennirnir tóku undir þetta. Aftur bað ungi maðurinn um orðið, en fékk ekki að tala, af því að hann vissi svo lítið. Feitur uxi var bundinn við tré og mörg augu fylgdust með því, þegar ljónin nutu veislunnar um kvöldið. Þau átu sig svo södd, að þau komu ekki aftur margar nætur í röð. Nú flaug sagan um visku gamla mannsins og honum bárust ýmsar gjafir, meðal annars stór stíg- vél og hermannafrakki. Hann skrýddist gjöfunum til merkis um hið aukna álit, sem hann nú naut. Bráðlega bárust boð frá nærliggjandi þorpi um að hann kæmi og tæki þátt í fagnaði kvöldið eftir. Rétt fyrir myrkur lagði gamli maðurinn af stað, frakki, stígvél og allt tilheyrandi með í förinni. En daginn eftir kom sendiboði frá nágrannaþorpinu til að spyrjast fyrir um af hverju gamli maðurinn hefði ekki komið í fagnaðinn, allir sáu hann leggja af stað, svo það var sendur út leitarflokkur. Stígvélin fund- ust og frakkinn, en gamli maðurinn ekki. Ljónin höfðu tekið hann sem þriðju fórnina í þágu friðar- ins. Enn var kallað til fundar vitringanna, og þegar þeir settust í hringinn, vantaði einn. Ungu mennirnir, sem voru svo fávísir, stóðu fyrir aftan. Og konurnar, sem vita svo lítið (!!!) kíktu út um kofadyrnar sínar. Nú krafðist ungi maðurinn máls og honum var leyft að tala. „Það, sem ég reyndi að segja ykkur var, að ljónin verða aldrei vinir okkar. Það eina raun- hæfa, sem við gerum, er að veiða þau.“ Ungu mennirnir fóru af stað með spjótin sín og ljónin ónáðuðu þorpsbúa ekki meir. Hvað sýnir sagan? Satan gengur um eins og öskrandi ljón og reynir að blekkja fólk eins og okkur. Síðan mun hann tortíma okkur. Við getum aldrei, aldrei stofnað til vinfengis við hann. Hann er óvinur okkar. Ritningin segir: „Standið í gegn djöflinum og þá mun hann flýja frá yður.“ Munið, að hann er mikill blekkjari. Eins og gamla karlljónið þá lætur hann undan, dagar hans eru taldir. I. Pétursbréf 5:8—10 er lærdómsríkt fyrir þá sem fylgja Kristi. 9. vers segir, að við séum ekki ein í baráttunni. 10. vers segir: „En Guð allrar náðar, sem hefir kallað yður fyrir samfélagið við Krist til sinnar eilífu dýrðar, mun sjálfur, er þér hafið þjáðst um lítinn tíma, fullkomna yður, styrkja og öfluga gjöra.“

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.