Afturelding - 01.01.1983, Blaðsíða 6

Afturelding - 01.01.1983, Blaðsíða 6
Til þín kæri vinur, sem lest þessar línur: Orðið varð hold, og hann bjó með oss fullur náðar og sannleika, og vérsáum dýrð hans, dýrð, sem sonurinn eini á frá föðurnum. Jóh. 1.14. Jesús sagði: „Eg er vegurinn, sannleiki Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig. Jóh. 14.6. Þetta talaði Jesús, hóf augu sín til himins og sagði: „Faðir stundin er komin. Gjör son þinn dýr/egan, tilþess að sonurinn gjöri þig dýrlegan. Þú gafst honum valdyfir öllum mönnum, að hann gefi ei/íft líf öllum þeim, sem þú hefur gefið honum. En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist. “ Jóh. 17. 1-4. Sá sem trúir og verður skírður, mun hólpinn verða. Mark. 16. 16. Kæri vinur, Guð elskar þig og gaf sinn eingetinn son, Jesúm Krist, til þess að vera friðþæging fyrir syndir þínar, sem og allra manna. A llir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð. Róm 3. 23. Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf. Jóh.3. 16. Ef þú ert þjáður af synd, í sorgum, sjúkur, eða í hverskonar erfiðleikum öðrum, þá komdu til Jesú Krists í trú, því að hann segir: Komið til mín allir þér, sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veitayður hvild. Matt. 11.28. Jesús svaraði þeim: Farið og kunngjörið Jóhannesi það, sem þér heyrið og sjáið: Blindir fá sýn, og haltir ganga, líkþráir hreinsast og daufir heyra, dauðir rísa upp, og fátœkum er flutt fagnaðarerindi. Og sœll er sá, sem ekki hneykslast á mér. Matt. 11.4-6.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.