Afturelding - 01.06.1986, Síða 3

Afturelding - 01.06.1986, Síða 3
Guöni Ingvarsson Salurinn í Betel í upprunalegri mynd. Herbert Larsson, frá Svíþjóð til hjálpar í starfinu, hann spilaði mjög vel á gítar og söng vel. Signe Aasbö hafði einnig mjög mikla og fagra söngrödd. Einnig kom Þorgeir Sigurðsson til hjálpar, hann starfaði í Eyjum um tíma. Árið 1925 komu hjónin Gyða og Nils Ramselius og störfuðu til uppbyggingar og blessunar í tvö ár, Ramselius hafði fagra og mikla söngrödd, söng oft ein- söng. Fyrsti orgelleikarinn var Sveinbjörg Jóhannsdóttir Guðni Ingvarsson. Trúsysturnar byrjuðu að læra að spila undir- spil á gítar. Halldóra Þórólfs- dóttir, Signe Aasbö, Sigríður Guðmundsdóttir og Kristín J. Þorsteinsdóttir. Halldóra Þór- ólfsdóltir var mjög tónviss, þess vegna var hún forsöngvarinn, Jónína lngimundardóttir hafði mikla rödd og söng með en spil- aði ekki. Allir reyndu að gera eins og þeir gátu til ellingar starf- inu, og Drottinn var með og sýndi áþreifanleg bænarsvör og veitti gleði og blessun í trúnni. Ég þakka Drottni fyrir liðinn tíma og fyrir alla þá bræður og systur sem hafa unnið að etlingu hans ríkis í samræmi við hans orð Biblíuna, sem vísar oss á veginn sem er Drottinn vor Jesús Kristur. Ég hefi tekið eftir því að enn í dag mætir Drottinn þeim sem leita hans í einlægni á sama hátt og hann mætti okkur fyrir 60 árum, og það sannar að hann cr hinn sami í gær og í dag og að eilífu. Við skulum hafa það í huga að það er Jesús Kristur sem gaf líf sitt á krossinum á Golgata sem frelsar okkur og enginn annar. Sveinbjörg Jóhannsdóttir var mikil andleg móðir fyrir okkur nýgræðingana. Hún hvatti okkur að biðja og lesa Biblíuna og svo sagði hún okkur að þó við gæt- um ekkert sagt annað í freisting- um og andlegu stríði en Jesús, Jesús, þá skyldum við gera það, því það er lausnarkraftur í nafni hans. Signe og Erik Ásbö.

x

Afturelding

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.