Afturelding - 01.06.1986, Side 13

Afturelding - 01.06.1986, Side 13
<1 verið í i'orsvari sunnudagaskól- ans í Betel. Barnaskarinn er minni en þegar ég sótti skólann á barnsaldri, en þeir sem leggja hönd á plóginn eru fleiri og mjög duglegir starfskraftar Drottins. k Þannig er hljómsveitin samsett af gítar, bassa, trompeti, klarin- etti, saxófón, trommum og píanói. Get ég fullyrt að þetta er einstakt í sunnudagaskóla. Fræðslan í orðinu fer fram með ýmsu móti. Notaðar eru flan- elografsmyndir, myndvarpi, lit- skyggnur, sem segja frá sögum Biblíunnará myndrænan hátt og síðast, en ekki síst, cr krítartafla og tússtafla mikið notuð til að teikna á myndir sem hæfa hverri sögu. Þá koma einnig við sögu brúður. Það er margt einstakt í sunnu- dagaskólanum, sem betra er að sjá en heyra um. Því er nú á döf- inni undirbúningur að sjón- varpsmyndagerð, þar sem fest verður á myndbönd margvíslegt efni, sem svo verður hægt að miðla til sem flestra. Þannig er uppbygging sunnudagaskólans að breytast úr klukkustundar samkomu, einu sinni í viku, í samverustundir, sem hægt verð- ur að hafa heimavið hvenær sem er vikunnar. Þetta verður að ger- ast, þarsern baráttan um sálirnar er nú harðari en nokkurntíma f'yrr. Af hverju koma færri börn í sunnudagaskólann nú, en í „gamla daga“ ? Afþreyingarefn- ið, sem börnum er boðið upp á, * er orðið svo mikið í sjónvarpi og videói að það tekur hug þeirra allan. Krislilegt efni er þar varla til enn sem komið er. Börnin eru sá akur en mesta ávöxtin geta gefið. „Sjá, uppskeran er mikil, en verka menn irn irfáir. ‘ ‘ KMO

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.