Afturelding - 01.06.1986, Page 14

Afturelding - 01.06.1986, Page 14
Snorri Oskarsson Starfsemin í Betel Vestmannaeyingar hafa tekið eftir því sem föstum lið í bæjar- blöðunum að við auglýsum reglulega samkomur allt upp í fimm kvöld í viku. Við mætumst til að lofa Drott- in og þjóna Jesú Kristi. Fimm kvöld í viku á samkomu. Það er nú nokkuð mikið, finnst þér ekki? í Biblíunni er sagt að þeir komu daglega saman einum huga, (Post. 2:46). Og meira að segja er sagt hvernig samkom- urnar hafi verið. Þeir komu til að lofa Drottin, (Post. 2:47). Á sunnudögum kl 16:30 erum við með boðunarsamkomu. Þar sem Orðið er boðað vinnur það á tvennan hátt. Margir ásaka okkur fyrir að vera alltaf’ að dæma fólk. En nokkrir koma þó á samkomur til okkar og gleðjast með okkur yfir öllu því sem Guð vill að komi fram í lífi okkar. En hvað með þetta að dæma? Jú það fylgir boðun Fagnaðarerind- isins því Fleilagur andi sannfærir heiminn um synd, réttlæti og dóm, (Jóh. 16:8). Þessi einkenni hafa fylgt orði Guðs frá því Guð þurfti að fara að eiga við rang- snúið hjarta mannsins, til dæmis um 600 fyrir Krist, (sjá Jesaja 28:13). Við getum ekki tekið brodd fagnaðarerindisins úr ræð- um okkar, því ekki boðum við okkur sjálf heldur Jesúm, (Post. 10:42). Við erum erindrekar hans, (1. Kor. 5:20). Samkom- urnar á sunnudögum eru því eingöngu til að reka erindi Jesú Krists og Guðs. Á fimmtudagskvöldum aug- lýsum við Biblíulestra kl. 20:30. Þar er markmiðið að auka við þekkingu okkar á innihaldi Biblíunnar. ,,Himinn og jörð líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok liða", (Matt. 24:35). Ekki getum við vitað vilja Guðs ef við höfnum Biblí- unni. í trúmálum eru margir kennarar og íjöldi trúarhreyfinga slíkur, að ekki er auðvelt fyrir fólk að vita hvað af öllu þessu framboði er frá Guði. Menn verða vegvilltir og láta leiðast frá Guði, ef Orð Guðs, Jesús Kristur fær ekki áheyrn hjá þeim, (Matt. 22:29). Það er líka rauður þráð- ur í Postulasögunni að við hverja samkomu og í hverri predíkun var Guðs orðið boðað og látið hafa stýrandi áhrif á söfnuðinn, (Post. 6:2). Við það að Orð Guðs, Jesús Kristur, fær að tala, mótast hinn trúaði til persónu hans og Fleilagur andi gefur okkur eiginleika sem Guð hefur. (Jóh. 14:23) Það er nefni- lega ekki hægt að vera kristinn og fara sinn eigin veg, gera það

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.