Afturelding - 01.06.1986, Side 18

Afturelding - 01.06.1986, Side 18
Freydís Fannbergsdóttir ,,Áþér hefur gerst kraftaverk Ég var nítján ára göniul og mjög heilsuhraust stúlka. Ég gekk í hvaða starf sem verða vildi, jafnvel erfiðustu karl- mannsverk svo sem að hausa fisk á búkka. En einmitt á sama ári varð mikil breyting á högum mínum, því ég missti algjörlega heilsuna. Það bar þannig til að máttleysi fór að gera vart við sig í vinstra fæti, ásamt krampaköstum sem urðu æ tíðari. Auðvitað lét ég lækna athuga ástand mitt og létu þeir mig fara til rannsókna í Reykjavík. Þar var skorið úr að ég þyrfti í skurðaðgerð vegna skjaldkirtilsins, yfir 80% hans voru tekin í burt. Heilsan fór vcrsnandi. Þá var ég send á Landspítalann í æða- þræðingu. Við þá aðgerð fundu þeir út hvað hafði valdið kramp- anum og máttleysinu sem var komið í vinstri fótinn. Æða- þræðingin leiddi í Ijós að æða- knippi við heilann hafði mynd- að nokkurs konar flækju svo að blóðstreymi varð óeðlilegt og talin mikil hætta á heilablóðfalli. Læknarnir sögðu að sennilega væru æðarnar í þessari ,,flækju“ svo lélegar að þær gætu sprungið hvenær sem væri. Mér var bann- að að reyna nokkuð á mig lík- amlega eða andlega. Ennfremur var f'arið að ræða um væntanlega skurðaðgerð til að forða mér frá heilablæðingu en aðgerðin yrði til þess að ég lamaðist vinstra megin. Ég vildi gangast undir þessa aðgerð þrátt fyrir það sem hún líklega leiddi til. Því eins og ástatt var mátti ég ekki eignast barn, það var of hættulegt vegna æðaflækjunnar. Læknarnir lcituðu til þriggja Ianda um aðgerð en í öllum til- fellum var áhættan talin ol' mikil - þeir óttuðust að ég yrði far- lama. Þeir höfðu einnig sam- band við lækna í Bandaríkjun- um, sem voru tilbúnir að l'ram- kvæma aðgerðina. Nú var allt skipulagt og undirbúið að kom- ast út. Skömmu áður en ég átti að leggja af stað kom tilkynning frá læknununi, sem ætluðu að skera, að aðgerðin myndi örugglega gera mig farlama, svo þetta ástand mitt væri betra en það sem ég fcngi eftir skurðað- gerð. Svo gerðist það að ég gifti mig og eignuðumst við dreng fjórum árum eftir hcilsubrest niinn, þegar ég var 23 ára. Hann var heilbrigður og í alla staði hraust- ur og er það kraf'taverk út af fyrir sig, vegna allra meðalanna sem ég þurf'ti að taka. Þau voru mörg hver hættuleg og ekki mátti ég sleppa þeim meðan á nieðgöng- unni stóð. Nú kom sá tími sem olli mest- um straumhvörl'um í líf'i rnínu. Það var 1980 að ég f'relsaðist fyr- ir blóð Jesú Krists. Ég f'ann að ég hafði frið við Guð. Ég vissi að mér voru allar syndir og yfir- sjónir f’ullkomlega fyrirgefnar. Þvílík stund! Ég þráði að lifa eins og sannkristin manneskja. En þegar ég ætlaði að afleggja tóbaksreykingarnar þá náði ég engurn sigri. Mér leið virkilega illa vegna reykinganna því ég fann hvað þetta passaði ekki frelsaðri manneskju. Orðið í 1. Kor. 6:12: ,,Allt er mér leyfilegt en ekki er allt gagnlegt. Allt er mér leyftlegl en ekki má ég láta neitt ná valdi yfir mér", talaði til mín. Ég hlýddi því ekki sem ég vissi að ég átti að gera. Mér var svo augljóst hversu rangt ég gerði. Þessi glíma milli óhlýðni minnar og Guðs stóð yf'ir í fimm ár. Sumarið 1985 fór Betelkór- inn á sumarmót í Siglufirði og ég ákvað að fara og vera mcð syst- kinum mínum við að boða Fagnaðarerindi Jesú Krists. Það hafði valdið svo mikilli byltingu í mínu lífii að mig langaði til að scgja öðrum f'rá þeim sem sann- arlega frclsar. En samt hafði ég tekið það í mig að f'ara ekki með nema ég væri orðin laus við tóbakið. Ég bað Guð um hjálp og sagði við hann að ég gæti ekki meira, hann yrði að korna mér til hjálpar og losa ntig undan reykingunum. Amen! Því er

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.