Afturelding - 01.06.1986, Síða 21

Afturelding - 01.06.1986, Síða 21
Sigmundur Gísli Einarsson í þessari grein ætla ég að ijalla um núverandi unglingastarf í Vestmannaeyjum, sem hófst árið 1980. Fyrstu tvö árin voru Ester Árnadóttir og Elín Stein- grímssen með starfið og lögðu grunninn að því sem er í gangi í dag. Árið 1983 hóf undirritaður störf með þeim stöllum. Þann tíma sem ég hef verið með hefur starfið byggst á lofgjörð til Drott- ins, söng, fræðslu í orði Guðs og síðan því sent alltaf fylgir ungl- ingastarfi, leikjum og skemmti- efni. 1984 flutti Elín til Akureyr- ar og fengum við þá til samstarfs við okkur Gíslínu Magnúsdótt- ur, sent var með okkur tvo vetur. Nú í vetur hefur starfið verið í höndum Snorra Óskarssonar forstöðumanns Betelsafnaðarins. Hér hef ég rakið sögu ungl- ingastarfsins í stuttu máli. En er þar með öll sagan sögð? Nei, al- deilis ekki. Hvað er unglingastarf í kristnum söfnuði? Maður heyrir alstaðar talað um unglingavandamál. Er eitt- hvað í kenningu Krists senr get- ur vakið áhuga hjá unglingun- um? Við getum spurt okkur, hvað það var sem við sóttumst eftir sem unglingar. Hvað gerð- um við um helgareða í þeim frí- tíma sem við áttuni á unglings- árunum? Unglingur í dag er það sama og unglingur áður. Einstakling- ur, að vísu ómótaður, en samt sem áður með þarfir og þrár sem fullorðinn og aðal þörf hans er sú sama og hjá fullorðnum manni. Hann vill fá lífsfyllingu og sálarfrið. Hann þarf stefnu og takmark til að keppa að. Hann er fullkomin sál, fullkominn ein- staklingur í óhörðnuðunt lík- ama. Jesús var líka unglingur. Meira að segja er talað um hann sem ungling í Biblíunni. í Lúkas 2:41-52 er skrifað um Jesúm 12 ára gantlan, þegar hann fór með Maríu móður sinni og Jósef til páskahátíðar- innar. Jesús týndist þarna í Jerúsalem og foreldrarnir fóru að leita að honunt. Það var fullt af allskonar afþreyingarefni í

x

Afturelding

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.