Afturelding - 01.06.1986, Side 22

Afturelding - 01.06.1986, Side 22
Jerúsalcm á þessum tíma, trúba- dúrum og skemmtilegu liði. Auðvitað leituðu þau þar, því Jesús var þara krakki, að komast á unglingsaldur, en ekki var hann þar á meðal. Eftir þriggja daga leit fundu þau hann loksins. Hvar var Jes- ús? Þau hafa verið búin að leita að honum um allt, áður en þau fóru þangað sem hann hélt sig. Jesús hafði verið í musterinu all- an tímann. Þau urðu að sjálf- sögðu hissa að hitta hann þarna, en hvað sagði Jesús við þau? Hvers vegna voruð þið að leita að mér! Jesús þurl’ti ekki að leita að af- þreyingarefni. Hann vissi hvar 1 ífsfylIinguna var að fá. Jesús gefur unglingi nútímans svar við spurningum hans. Svar hans í dag er líkt og fyrir rúmum nítján öldum: „Mér ber að vera í því sem míns föðurer." Ef þú, sem lest þessar línur, ert spyrjandi unglingur eða full- orðinn, spyrjandi um fyllingu í líf þitt, spyrjandi um frið í hjart- að, þá skaltu byrja á að biðja Jesú Krist unt að koma inn í líf þitt. Þar sem þú ert, eða í kvöld þegar þú ert orðin ein eða einn! Segðu: „Jesús, komdu inn í líf mitt, komdu inn í hjarta mitt og vertu Drottinn minn. Ég vil fylgja þér.“ Þar með hefur þú rétt hönd þína til Jesú. Það er pottþétt að hann tckur í hönd þína og kcnt- ur inn í líf þitt. Hann mun gefa þér þann frið og lífsfylIingu seni þú leitar eftir. í unglingastarfinu seni ég hef tekið þátt í, hef ég tekið eftir að boðskapur Jesú, hvort sem er í söng eða tali nær alltaf til ungl- inganna. Þetta er það sem þau sækjast eftir og finna f'rið í. Ungl- ingahópurinn hér í Vestmanna- eyjum er ekki stór, en hann er hluti af enn stærri hóp, sem nær úl um ísland og frá íslandi til annarra landa. Vinur minn, þú scm Iest þetta. viljir þú vera með okkur sem kristin manneskja, hvort sem þú ert unglingur eða fullorðinn, þá bjóðum við þig velkominn í hópinn. Við leituðum að lífsfyll- ingu og f'undum. Við leituðum að friði í hjartað og fundum. Við leituðum að takmarki til að stefna að og fundum. Lífsfylling- in, friðurinn og takmarkið er Jesús Kristur. Jesús var ungling- ur, hann skildi ntig og ég veit að hann skilur þig líka. Vertu velkominn í liópinn! Sigunnundur Gísli Einarsson. 19 GuðjónÓ hf. Þverholti 13 125 Reykjavik Pósthólf 5509 Simi 27233 Prentum aðeins fyrir hina vandlátu

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.