Afturelding - 01.06.1986, Síða 34

Afturelding - 01.06.1986, Síða 34
Einar J. Gíslason Fíladelfíu- söfnuðurinn í Reykjavík 50 ára Þann 18. maí árið 1936, var Fíiadelfíusörnuðurinn í Reykja- vík stol'naður. Voru þá saman- komnir í Varðarhúsinu í Reykjavík eftirfarandi stofnend- ur safnaðarins: Ólöf Einarsdótt- ir, Árnína Guðjónsdóttir, Sæ- mundur Sigfússon. Þuríður Páls- dóttir, Eric Ericson, Signe Eric- son, Ásmundur Eiríksson, Jó- hanna Jónsson frá Færeyjum, Þórunn Þorvaldsdóttir, Guðríð- ur Eyjólfsdóttir og Arndís Sölva- dóttir. Auk stofnenda voru við- staddir T.B.Baratt forstöðumað- ur frá Noregi, Guðrún Lárus- dóttir alþingismaður, sonur hennar Friðrik, Sigrid Ásgeirs- son og fleiri. Eric Ericson var kosinn forstöðumaður og Ás- mundur Eiríksson ritari. Söfn- uðurinn tók heima í leiguhús- næði, í Varðarhúsinu, Bröttu- götu 3. Við hátíðir voru tekin á leigu Iðnó, Austurbæjarbíó og fengið inni í kirkjum, einkanlega Fríkirkjunni. Árið 1937 gengu ekki færri en 17 manns í söfnuð- inn, þannig að starfið rótfestist. Eric Ericson var forstöðumað- ur í 12 ár, þar til hann fór til Ameríku. Hann dvaldi þar stutt og kom heim aftur, eftir tæpa ársdvöl. Var hann meira og minna viðloðandi starfið hér í Reykjavík og síðar í Kellavík, þar sem hann vann verk braut- ryðjandans. Ásmundur var forstöðumaður í 22 ár eða frá 1948 til ársins 1970. Á hans tíma var byggt í Hátúni 2 og byggingin svo lil skuldlaus þegar hún var vígð 19. október 1969. Ásmundur dró sig í hlé, bæði vegna aldurs og þverrandi heilsu. Einar Jóhann- es Gíslason tók við starfinu 1. október 1970 og gegnir því þegar þetta er skrifað. Allir forstöðu- mennirnir hafa jafnframt verið ritstjórar Aftureldingar, sem er aðal málgagn hreyfingar Hvíta- sunnumanna á Islandi. Svo og Barnablaðsins, sem út er gefið af forlagi Fíladelfíu. Jafnhliða áðurgreindum forstöðumönn- um, þá hafa starfað sem trúboð- ar og oddamenn safnaðarins Jónas S. Jakobsson, Þórarinn Magnússon, Arnulf Kyvik. Tryggvi Eiríksson, Guðmundur Markússon, Arinbjörn Árnason og Sam D. Glad. Húseignin Hverfisgata 44 var keypt árið 1938. Samanstóð eignin af tvílyftu timburhúsi, með kjallara og risi og svo úti- húsi sem notað var á vegum Háskóla íslands um árabil. Þar var innréttaður samkomusalur, sem síðar var stækkaður árið 1949. Þarna átti söfnuðurinn sitt andlega heimili til ársins 1962, að salur var tekin í notkun á neðri hæð kirkjunnar við Hátún 2, þar sem stefnt var að framtíð- arheimili safnaðarins. Árni Arinbjarnarson hefir

x

Afturelding

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.