Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1949, Blaðsíða 12

Heimilisblaðið - 01.01.1949, Blaðsíða 12
10 HEIMILISBLAÐIÐ byrjaði hún 'að leita að tveim dökkum deplum. Það var orðið mannmargt í fjallakofanum. Fjallgöngumenn ásamt leiðsögumönnum ætluðu að gista yfir nóttina og leggja af stað morguninn eftir. Allir töluðu um, að það væri of mik- il lausamjöll ennþá uppi. Lísa liafði legið vakandi alla nóttina, en Hans svaf eins og steinn við lilið hennar. Rúmið var hart og það fór illa um hana. Hiin varð næstum fegin, þegar leiðsögumaðurinn barði hjá þeim. Það reyndist ekki auðvelt að vekja Hans. Hana langaði mest til að lofa hon- um að sofa áfram, en hún skannnaðist sín fyrir svo eigin- gjarnar hugsanir og vakti hann. Það var ekki sami hetjumóð- urinn yfir lionum og daginn áður, er liann kvaddi liana syf j- aður og önugur. Hún óskaði þess af heilum hug, að leið- sögumaðurinn væri gæddur ótakmarkaðri þolinmæði. En hve hugurinn reikaði víða, þegar maður sat og beið! Það liafði verið föður henn- ar þvert um geð, er hún opin- beraði trúlofun sína með ritliöf- undinum Hans Wang, sem að vísu var ekki ennþá orðinn við- urkenndur rithöfundur. Faðir liennar var verzlunarmaður og hafði unnið sig áfram úr sár- ustu fátækt. Nú var liann eig- andi að stórri lyfjaverksmiðju. Hann hafði veitt henni allt, sem auðæfi gátu í té látið, en von- aðist eftir ]>ví, að hún mundi giftast þeim manni, er hann gæti borið traust, til. En ákvörð- un Iiennar varð ekki bifað. Fað- ir hennar sýndi mikinn dreng- skap gagnvart unnusta hennar, en hann sagði hreinskilnislega álit sitt á tengdasyninum til- vonandi. — Ég ætla ekki að ásaka Hans um að gifta sig eingöngu vegna peninganna! Þú ert fög- ur og skynsöm, þótt engir pen- ingar fvlgi þér í heimanmund! En Hans er framúrskarandi eig- ingjarn maður. Dag þann, sem þér verður Ijóst hið rétta inn- ræti hans, muntu verða óham- ingjusöm. Auk þess ertu miklu eldri en liann, þótt þú sért ekki nema tuttugu og fimm ára. Hann verður aldrei fullorðinn, liann mun aldrei verða fær um að sjá fyrir þér . . . Lísa liafði ekki sinnt aðvör- un föður síns. Og nú höfðu þau verið gift í hálfan mánuð. Fyrstu tólf dagana höfðu þau verið mjög hamingjusöm, en svo liafði byrjað að rigna, og Hans áleit veðráltuna eins og persónulega móðgun við sig, honum leiddist —1 og nú var liann farinn í jökulgöngu án liennar. Lísa roðnaði. Hér sat hún og hugsaði beiskar hugsanir um ástvin sinn. Ef lil vill var hann dálítið eigingjarn, en hún elsk- aði hann þrátt fyrir það. Og ef þau eignuðust harn mundi ábyrgðartilfinning lians að sjálfsögðu vakna. — Hafið gát á, nú koma þeir bráðuin í ljós! kallaði gestgjaf- inn. Margir gestanna söfnuðust umhverfis Lísu og hönd henn- ar skalf, þegar liún sneri sjón- aukanum að jöklinum. í ljós komu litlir, dökkir hlettir á hvítum grunni. Gang- an upp á sjálfa jökulbunguna var hafin. Kaðallinn, sem batt þá saman, sást ekki, en það var auðvelt að fylgjast með hverri hreyfingu ]>eirra. -— Það er of mikil lausamjöll þarna uppi! mælti gamall leið- sögumaður. Stóri Jóliann hefði átt að bíða einn dag. Unga manninum verður þetta ofraun. Hann sekkur í upp að hnjám við livert spor. Lísa hlustaði á tal mann- anna. öll skilningarvit hennar voru þanin til liins ýtrasta. En live Hans mundi verða hreyk- inn eftir ferðalagið! Hans, sem bar í brjósti ævintýraþrá eins og skóladrengur! -— Nú eru þeir hjá liættuleg- asta staðnum! sagði gamli leið- sögumaðurinn. Lísa sá, að þeir námu staðar, leiðsögumaðurinn hreyfði handleggina upp og niður, hann hjó spor í ísinn. Síðan héldu þeir áfram, — en hvað var þetta . . . Aftari maðurinn fórnaði upp höndum og féll niður. Hrasaði liann? Eða lienti liann sér nið- ur? Hann rann áfram og tók leiðsögumanninn með sér. Þeir lágu á ísnum . . . Handleggirn- ir voru teygðir út til liliðanna, og það var engu líkara, en þeir væru að þjóta niður jökulinn að gamni sínu. Daufur skruðningur heyrðist, snjóbreiða losnaði, og snjórinn þevttist hátt í loft upp. Skruðn- ingurinn bergmálaðist frá fjalli til fjalls, en snjóflóðið stóð að- ins örstutta stund. Engin hreyf- ing varð greind lengur. Þögnin ríkti á ný yfir skriðjöklinum. Áhorfendurnir við fjallakof- ann biðu í þögulli eftirvænt- ingu, en allt í einu tóku þeir að æða um í mikilli geðshrær- ingu.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.