Heimilisblaðið - 01.01.1970, Blaðsíða 43
Drekkið meiri mjólk!
Yaxandi neyzla mjólkur og mjólkurafurða er talaudi vottur þess, að
skilningur almennings er vaxandi á gildi þeirrar fæðu, er reyndist bezta
björgin, er harðast kreppti að þjóðinni.
BORÐIÐ MEIRA SMJÖR
Þó að vaxandi skilningur sé á gildi mjólkurafurða í þjóðarfæðinu,
skortir enn á, að neyzla mjólkurafurða sé nóg.
NEYTIÐ MEIRI OSTS
Víða um heim er liafin sókn til að útrýma fæðuskortinum. Alls staðar
er ráðið hið sama: aukin neyzla landbúnaðarafurða, einkum mjólkurvara.
ISLENDINGAR! — EFLIÐ EIGIN FRAMLEIÐSLU —
NEYTIÐ MEIRI MJÓLKUR
Neyzla mjólkurvara í mjög ríkum mæli er gruiulvöllur næringarríks
fæðis. Þar eð nokkuð stór hópur manna liefur ekki atliugað þetta, er
þeim brýn nauðsyn að auka neyzlu mjólkur og mjólkurvara.
HRAUST ÆSKA NEYTIR MEIRI MJÓLKUR
Það er kappsmál allra þjóðhollra manna, að þjóðin búi við hollasta
fæðuval, sem kostur er á. Hér á landi eru öll skilyrði til að framleiða
gnótt þeirrar fæðu, sem þýðingarmest er í þjóðarfæðinu.
Meiri mjólk, smjör og osta.