Iðunn - 01.01.1884, Síða 9

Iðunn - 01.01.1884, Síða 9
3 Sigrún á Sunnulivoli. hann kvað það, hvort sem væri, standa á sama, hver gripinn ætti, ef hann að eins þrifist. Öðru megin í dalnum þétt uppi undir háu fjalli lá bær sá, er hét í Grenihlíð, og var það nafn af því dregið, að bærinn lá mitt í stórum greniskógi, og var það eini skógrinn í öllu því bygðarlagi. Lang- afi eigandans, sem nú var, hafði verið einn með öðr- um í liði því, er sent var suðr til Holtsötalands og beið þar Eússa, og úr þeim leiðangri kom hann lieim með í hernaðar-tösku sinni margar erlendar og undarlegar frætegundir. Hann plantaði þær um- hverfis bæ sinn ; en með tímanum dóu þær út hver eftir aðra; að eins nokkrir grenikönglar, sem ein- hvern veginn höfðu slæðzt þar með, höfðu blómgazt og orðið að stórum skógi, sem skygði nú að húsun- um á alla vegu. Iloltsetalands-fari þessi hafði heitið þorbjörn eftir afa sínum; elzti sonr hans Sæmundr eftir föður hans, og þannig höfðu óigendr jarðarinn- ar heitið á víxl þorbjörn og Sæmundr alt frá ómuna- tíð. En það orð lék á, að aldrei fylgdi hamingjan nema öðrum hvorum feðga á víxl í allri þeirri Greni- hlíðar-ætt, og það var aldrei sá, sem þorbjarnar- nafnið bar. Sá hét Sæmundr, sem nú átti jörðina, og fyrst er honum fæddist sonr, var hann á báðum áttum, hvað úr skyldi ráða, en hafði þó ekki í fullu tré með að brjóta fornan ættarsið, og lét því svein- inn heita þorbjörn. Var haun mjög hugsandi um það, hvort eigi mundi takast mega að ala drenginn svo upp, að ekki yrði honum að fótakefli sá forlaga- steinn, er munnmæli manna höfðu orpið á æfibraut hans. Hann var ekki alveg viss um það, en hon- um fanst hann verða var við stórlyndis-vott í i*

x

Iðunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.