Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1926, Side 54

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1926, Side 54
48 Sigurður Nordal: IÐUNN og hún kemur fram í Völuspá, er að mörgu leyti frá- bærlega fögur, þótt þar sé hugmyndir, sem teljast verða úreltar. Mér er nær að halda, að hin norræna jötnatrú sé beztu drög til lýsingar hins »illa«, sem fram hafa komið í trúarbrögðunum. Eða eru margar djarfari og og drengilegri hugmyndir til en Æsir og Einherjar, sem húast og eflast sífelt til baráttu við alla Heljar sinna, þó að þeim sé enginn sigur vís? Er það ekki lélegt lið- sinni við hið góða, að vilja hafa »tryggingu« fyrir því fyrirfram, að það hljóti að sigra? Mér er enginn ami að því sálufélagi við Þór, sem E. H. Kv. eignar mér, þótt af nokkurum misskilningi sé. Eg ber mikla lotningu fyrir Asatrúnni. Hún er ekki ein- ungis merkileg tilraun til þess að skilja tilveruna, eins og önnur trúarbrögð, heldur er það tilraun forfeðra vorra og á sérstakt erindi til vor. Eg hef áður, í útgáfu minni af Völuspá og lítið eitt í grein hér í Iðunni (VIII, 177—78), fengið tækifæri til þess að minna á lífsgildi hennar, og vona að geta vikið að því efni síðar. En í þetta sinn vil eg einungis minna á, hv>e mikils virði þessi trúarbrögð eru fyrir hvern þann, sem skilja vill íslenzka þjóð. Þau eru sköpuð af frændum vorum og forfeðrum, áður en hinar suðrænu og austrænu menningaröldur flóðu yfir Norðurlönd. Þau eru mótuð af norrænu unv hverfi, norrænni hugsun 05 skapi. Og enn situr meir eftir af þeim í eðlisgrunni Islendinga en margan grunar. Á slíku veitist vísindunum erfitt að festa hendur, en djúpsýn skáldanna á sér þar merkilegt efni til athugunar og íhugunar. Eg trúi því, að það, sem marka mun nýja blómaöld íslenzkra bókmenta, verði framar öllu nýr og dýpri skilningur skáldanna á sögu, menningu og einkenn- um þjóðarinnar. Rannsóknir fræðimanna eiga að búa í hendur skáldunum, en þau aftur að eiga meginþátt í að

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.