Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1955, Blaðsíða 46

Kirkjuritið - 01.04.1955, Blaðsíða 46
188 KIRKJURITIÐ og veggkerti í stíl við hana. Sérstaka krónu lét hann á söng- loft, hjálm í fordyri, ljós í skrúðhús og víðar og tvö útiljós. Rafmagnskerti voru sett í gömlu kertakrónuna, sem er mjög svipuð hinni nýju, en þó nokkru minni. Svo lét Júlíus einnig í té jarðstreng úr vélarhúsi í kirkju. Að öllu þessu vann Júlíus sjálfur við annan mann í sumar- fríi sínu og fengu þeir Sigurð Lárusson bónda í Tjaldanesi með sér. Tilkynnti Júlíus síðan, að hann og kona hans, frú Ingibjörg Guðmundsdóttir, gæfu kirkjunni raflýsinguna og áfallinn kostnað, en því fé, sem söfnuðurinn hafði safnað, skyldu þeir verja til kaupa á Ijósavél. Við messu á jóladag síðastliðinn var svo fyrst kveikt á ljós- um þessum, og var þá ljósahátíð hið ytra sem innra í Staðar- hólskirkju. Eftir leikmannsmati mun gjöf þessi nema um 30 þúsund krónum. Þegar um svo stóra gjöf er að ræða, þykir mönnum enn meir til koma, þegar það er utansveitarmenn sem gefa, en Júlíus er fæddur að Lágafelli í Miklaholtshreppi, Snæf., og kona hans á Kálfárvöllum í Staðarsveit. En Björn Björnsson, faðir Júlíusar, var Saurbæingur frá Hvammsdal. Bræður hans, þeir Evert Björnsson frá Hvammsdal og Jón Björnsson í Tjalda- nesi, unnu við kirkjubygginguna ásamt Jóakim Guðmundssyni yfirsmið. Systursonur þessara bræðra, sonur Margrétar Björns- dóttur, er svo Ólafur Skagfjörð, núverandi formaður sóknar- nefndar. Hefir þessi ættleggur því hlúð vel að Staðarhólskirkju. Fyrst vinna þeir bræður við smíði hennar, og svo koma þeir systkina- synirnir Ólafur og Júlíus með sín verk og þessa stórmannlegu gjöf. Ætt þeirra hefir jafnan verið trú kirkju sinni og kristn- um dómi, enda má rekja hana til fornra kirkjuhöfðingja hér- lendra. Þórir Stephensen. fílönduóskirkja sextíu ára. Á þessum vetri átti kirkjan á Blönduósi sextugsafmæli. Var hún vígð 13. janúar 1895. Var það fyrsta kirkjan, sem reist var á Blönduósi, en áður hafði sóknarkirkjan staðið á Hjalta-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.