Kirkjuritið - 01.01.1964, Blaðsíða 32
26
KIRKJURITIÐ
kirkjan er yf'irlýst þjóðkirkja, sem svo að kalla allir kjósa að
leljast til, er það (laglegur viðburður að mönnum standi allar
leiðir opnar til að svívirða kristindóminn á opinberum vett-
vangi. Og þótt börnum séu kennd boðorðin í skólunum, leyfist
kvikmyndaliúsum, útvarpi og sjónvarpi að rugla ]>au í ríminu
og afvegaleiða þau á marga lund.
Því má samt ekki gleyma að allir eiga liér ekki sama blut að
máli. Fjöldi æskufólks er hrifinn af kristnum hugsjónum og
ótal lieimili, kennarar, æskulýðsleiðtogar og margir fleiri sá
binu góða sæði í þjóðlífsakurinn. En betur má, ef duga skal
lil að sigrast á Jieirri óáran, sem enn ríkir og voði stendur af.
Páfinn brýtnr nýja braut
Á öðrum stað í ritinu er skýrt frá Jórsalaför Páls páfa 6. Öll-
um er nú Ijóst að við koinu Jóhannesar 23. á páfastól, urðu
tímamót í sögu kaþólsku kirkjunnar og vonandi kristninnar
allrar. Kirkjan öll er í nýrri sókn eftir nýjum leiðum.
Það eru gleðilegustu kristnitíðindi í margar aldir og mesta
friðarvon mannkynsins nú og í framtíðinni.
Gömul bæn
0, Jesús Kristur, góði frelsari! Þú tókst börnin þér í fang,
bl essaðir þau og sagðir, að þeim lieyrði guðsríki til. Æ, taktu
mig að þér og blessaðu mig. Hjálpaðu mér að vera gott og
lilýðið barn, svo ég bvorki hugsi, tali né gjöri það sem er Ijótt
og syndsamlegt. Hjálpa jni mér til að vaxa í náð hjá Guði og
mönnum. Gef þú mér skilning og löngun til að læra það sem
gott er, löngun til að lesa og beyra þitl lieilaga orð og blýða
því með andakt og eplirtekt. Láttu mig muna eftir að biðja
þig oft og innilega, svo ég baldi mér stöðuglega við Guð og
geti elskað liann og þig af öllu lijarta. Æ, bimneski faðir, vertu
faðir minn í Jesú nafni. Yernda þú mig og frelsa þú mig frá
öllu illu. Látlu mig ævinlega vera þitt barn, svo ég erfi þitt
himneska ríki, sem þú hefur þínum börnum heitið. Bænlieyr
það í Jesú nafni. Amen.