Kristniboðinn - 01.05.1933, Blaðsíða 3

Kristniboðinn - 01.05.1933, Blaðsíða 3
KRISTNIBOÐINN 3 neina leið út úr vandræðunum á fast- an grundvöll. Hvað tala menn þá mest um? Hverju eru menn mest alteknir af og hvað mergsýgur líf manna meira en peningarnir? Peningarnir, sem menn eiga, en þó enn frekar peningarnir, sem menn ekki eiga, — peningarnir, sem aðrir eiga, — en hvað þeir ráða yfir mönnunum og ríkja yfir hugum þeirra og vekja öfund, hatur og gremju, svo að lífið verður ljótt og ruddalegt. Pá er það yfirráð blaðanna. Pað er mjög furðulegt, hvílíkt vald blöðin hafa yfir mönnunum. Par telja menn hina æðstu speki að finna. Par finst sann- leikurinn í fullum mæli. Nýungar í dag, úreltar á morgun. En menn þykj- ast þurfa að fylgjast með, og þetta er auðveldasta leiðin til þess, að geta myndað sér skoðanir á því, sem við ber, og svo láta menn kúgast í allri auðmýkt. Svo eru flokks-yfirráðin. Þau kveikja í þúsundum manna áhuga og æsingu á vorum tímum. Hvort það er rétt eða rangt, sem barist er fyrir, hvort það göfgar mannlífið eða spillir því, það hefir enga þýðingu. Stefna flokksins er hið eina, sem þýðingu hefir, og það er vopnið gegn andstæðingunum, sem á að yfirbuga þá, og það nægir. Og svo er það síðast en ekki sízt yfir- ráð almennings. Þetta segja aðrir. Petta er tízka núna. Það er álit félaganna og kunningjanna. Eftir því eiga menn að hugsa og álykta, og svo fljóta menn með straumnum. Pótt einstaklingseðlið, sjálfstæðið, hið marglofaða frelsi, líði við það og jafnvel fjúki veg allrar ver- aldar, það hugsa menn ekkert um, því það er svo kosnaðarsamt og fyrirhafn- armikið að hugsa. Yfirráð peninganna, blaðanna, flokk- anna og almennings skipa: »Hangið þið við ef þið ætlið með! Og svo fylgja menn skipuninni. Eða hvað lýst yður? Ef þessi yfirráð skipa meðal annars svo fyrir, að menn skuli ausa auri á kirkjuna og kristindóminn, og alt, sem því heyrir til, þá gera menn það auð- vitað! Pegar því er haldið fram, að all- ir siðir og venjur sé orðið úrelt, að menn skuli gifta sig hjá lögmanni, og skilja svo aftur þegar svo vill verkast; eða þá búa saman ógift, ef það sýnist hag- feldara og þægilegra, og láta fýsnir og tilfinningar ráða, því það sé eðlilegast, — þá gera menn það umsvifalaust. öþverrasögur, blót, guðlast, lýgilegar fullyrðingar og allskonar ruddaskapur í orði og æði, er talið svo undur eðli- legt alt saman, það er álit fjöldans og þeim yfirráðum lúta menr erðalaust. Nú vil ég spyrja, 1. tileíni af þessu: Er nokkur meining í þessu? Yerða menn betri við það eða hreinni? Yerður meiri hátíðleiki yfir lífi manna við þetta? Veitir það raunverulega eða varanlega gleði? Veitir það öruggleika og hvíld? Veitir það burðarmagn á erfiðleika- tímum eða því um líkt? Já, ég veit, að þetta þykja einfeldn- ingslegar og gamaldags spurningar, en hver veit, nema sú staðhæfing sé enn í; gildi, að sönnu mannlífi lifi sá einn, er kappkostar að vera hreinn og góð- ur, glaður og öruggur, og sem ekki er ánægður nema samræmi, menning og hátíðleiki sé yfir dimmviðrisdögum hversdagslífsins, svo að hann geti ávalt séð heim. Pess vegna mun kristindómurinn ávalt beina boðskap sínum til hins mannlega í mönnunum og mæla fram með sér við samvizku þeirra. »Hví dæm- ið þér ekki jafnvel af sjálfum yður, livað rétt sé?« sagði Jesús Kristur einu sinni, þegar hann stóð frammi fyrir hinum mikla mannfjölda. Mennirnir komast aldrei fram hjá honum. Hann slær aldrei fram miskunnarlausum fyr- irskipunum. Hann beinir orðum sínum til einstaklingseðlisins, til innra manns- ins; til hinna leyndustu kima í brjóst- um manna, og hver sannur maður verð- ur að játa, að hann hafi á réttu að standa. Mistök kirkjunnar hafa verið mörg, hún hefir margt og mikið á samvizk- unni, það er sannleikur. Hinir kristnu eru syndugir menn og það þarf ekki mikið hugvit til þess, að benda á þá og draga galla þeirra fram í dagsljós- ið; það er líka sannleikur. En hátt, ofar kirkjunni og hinum kristnu, stendur Ilann, Jesús Kristur. Og það er hann, sem vér höfum saman við að sælda. Fyrir honum skal hvert knje einhvern- tíma beygja sig og viðurkenna, að hann er Drottinn. Hvað á ég að gera við Jesús? í þessari spurningu dragast allir þræðir saman í einn hnút. Ilann gengst ekki upp við neina yfirborðs-aðdáun, eða höfuðhneigingu í viðurkenningar- skyni. »Við heilsum hver öðrum, hann og' ég,« sagði trúleysinginn Voltaire, — »en að öðru leyti höfum við ekkert sam- an að sælda.« Hann kærir sig ekkert um að vera aðeins fögur fyrirmynd, sem maður getur borið virðingu fyrir, en lifir að öðru leyti eins og manni sjálfum sýnist. Hann kom hingað í heiminn til þess að verða frelsari frá synd. Hann kallaði menn, sem einstakl- inga, út úr mannfjöldanum, til þess að gera upp lífsreikning sinn frammi fyr- ir hinum lifandi Guði. Hann kemur til hins einstaka manns, sem hefir komið auga á, að það, sem hann þarfnast fram- ar öllu öðru, er fyrirgefning af náð. Það er ekki nema einn staður til, þar sem samband næst milli himins og jarð- ar, milli Guðs og manna, og það er við krossinn á Golgata. Fyrirgefningarstað- urinn. Þess vegna hringja klukkurnar yfir höfuðborginni, þess vegna eru þessar línur einnig skrifaðar, — til þess að minna mennina á, að frelsi fæst að- eins í því, að vera bundinn honum með böndum kærleikans. Hjá honum réttist úr bognu bakinu og leiðin opnast til frjálsrar framgöngu, og hjá honum sjá- um vér heim. Það er frelsi, það eitt og ekkert annað. Undir yfirráðum, —- svo er lífið án 0 Guðs. Eins og elskuð börn hjá elsku- legum föður sínum, — svo er lífið með Guði. Pað er hátíðalíf og öruggleiki. — Pú ert nægjusamur, ef þú gerir þig ánægðan með minna. (Lausl. þýðing). Truarprá í Kína. Eftirfarandi smágrein stóð nýlega í Kristniboðstíðindum sænsku kirkjunn- ar: »Aðalframkvæmdastjóri K. F. U. M. í Kína, David Yui, skrifar aðalstöðv- um K. F. U. M. í Geneve: Þjóðai’ógæfa vor knýr oss, marga Kín- verja, bæði leiðtoga og aðra, á kné fyr- ir lifandi Guði, sem stýrir örlögum þjóð- anna. Ég heimsótti nýlega Nanking, ásamt konu minni, og söfnuðum við þá sam- an, fyrir mjög eindregna beiðni for- setans, Chiang Kai-Shek og konu hans, dálitlum flokk kristinna manna og kvenna, er kom saman síðdegis á hverj- um degi, til þess að biðja sameiginlega fyrir Kína. Þessi flokkur reyndist mjög ötull og einarður í lifandi trú á fyrir- heiti Guðs. Dr. C. T. Wang, sem til skamms tíma hefir verið utanríkisráðherra, er van- ur að segja að kristindómurinn sé hin eina frelsisvon Kína. Margir aðrir leið- togar, og þar á meðal margir, sem ekki eru kristnir, hafa allir komist að sömu niðurstöðu. Trúarleg þrá virðist nú ganga eins og alda yfir landið, einkum meðal stud- enta og annara æskumanna þjóðarinnar. I ýmsum hlutum Kína rekum vér nú ötullega kristniboðsstarfsemi, einkum í bæjunum. Fornvinur vor, Sherwood Eddy, veit- ir oss þýðingarmikla aðstoð í þessu. Hundruð ungra manna hafa tekið þá ákvörðun að lifa nýju kristilegu lífi og enn þá fleiri eru teknir að nema kristna. trú. Kristniboðar með sérstökum náð- argjöfum leiða vakningasamkomur með- al hinna kristnu í ýmsum bæjum, og Guð notar þá á hinn undursamlegasta hátt. Land vort hefir orðið fyrir margvís- legu óláni hin síðustu ár. Hvernig ætt- um <ér að hafa nokkra von um Kína, ef slíkt ólán getur ekki vakið djúptæka trúarþrá í þjóðinni, svo hinir kristnu verði knúðir til að gera heilhuga til- raun til þess að leiða landa sína fram fyrir hásæti Guðs, svo þeir fengju lof- að og vegsamað hans nafn. Sjálfur finn ég til hins innilegasta þakklætis í hjarta mínu við hugsunina um þessa öldu vaknandi trúarlífs, er gengur yfir land vort, og um endur- fæðingaranda þann er vottar fyrir inn- an hinnar kristnu kirkju í Kína um þessar mundir. Vér trúum því, að þetta verði, ekki aðeins Kína til björgunar, heldur muni styðja að því að upp rísi nýtt Kína með glæsilega framtíö fyrir sér.

x

Kristniboðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristniboðinn
https://timarit.is/publication/510

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.