Templar


Templar - 29.04.1908, Síða 3

Templar - 29.04.1908, Síða 3
TEMPLAR 67 „Utiamcmtafélag Rcykjav>íkur“ og „Uttgtncmta- Tclagiö IðUttlt" höfðu fagnað á sumardaginn tyrsta í Báruhúsinu. Voru þar veitingar, ræðuhöld og ýmsar skemtanir Þar var og sungið kvæði það, er þér fer á eftir, er Einar P. Jónsson hafði ort fyrir minni íslands, og stýrði Sigfús Einarsson söngnum. Sagnauðga land með ný og fornhelg fræði, framsóknar land með æfintýr og kvæði. Ungir sem gamlir falla þér að fótum, flytja þér lof af hjartans instu rótum. Elskaða land með fjallabarminn breiða, brosandi Iand með tignarsvipinn heiða. Þú hefir yljað æskuvonum mínum, unaðslegt væri’ að geta hlynt að þínum. Heilaga land, í hjörtum þinna sona heimur er opinn nýrra sólskins vona, vona sem eiga að öðlast fullau blóma okkur og þér til heilla, gagns og sóma. Framtíðar land þinn fána láttu skína — fáninn skal öllum þjóðum rétt vorn sýna. — Undir því merki eigið þér að verjast íslenzku hermenn, fæddir til að berjast ! Skrúðgöngu með íslenska fánann höfðu og fé- lögin ákveðið að hafa á sumardaginn fyrsta, en sökum ofveðurs, er þá var, var henni frestað, þar til á sunnudaginn 26. þ. m. Gengu félögin með 25 íslenska fána með hornablástri um götur bæjarins. Að tilhlutun félaganna flutti Indriði endurskoðari Einarsson minni íslands af svölum á »Hotul Reykjavík«, og Guðmundur héraðslæknir Harmesson mælti þar fyrir minni fánans. Tókst skrúðganga þessi vel og félögunum til mikils sóma. Félögin höfðu og gengist fyrir því, að um 20 íslenskir fánar voru dregnir á stöng hér í bæn- um sumardaginn fyrsta. úr Strattdasý$lu. Steingrimsfirði, ll.Apr. 1908. Frá nýári og til þessa dags, er aðeins skortir rúnta viku til sumarmála, hefir veðráttan verið yfirleitt hagstæð og hlý, og veturinn mátt heita venju- fremur góður og snjóaléttur. Sunnanátt hefir verið tíð, en ákaflega stormasamt með köflum. Síðustu vikuna af Febrúar viðraði hér illa, norð- an stórhríð á hverjum degi. En menn mega nú ekki kippa sér upp við slíkt, síst á þessum slóð- um. Það var nú bæði að sett var hér á með minsta móti í haust er leið, enda er heyforði bú- enda góður, og gæti vel þolað hart vor, ef því þyrfti að taka. — Vel og greiðlega hefir gengið með stauraflutn- inginn á símalínuna fyrirhuguðu milli Staðar og ísafjarðar, að því er þetta hérað snertir. Hafa allir þeir, sem stauraflutninginn tóku að sér, á- batast á því verki nteira og minna, nokkrir jafn- vel haft alt að 200 krónurn í hreinan ágóða. Guð- jón kaupstjóri Guðlaugsson hefir haft sig ntjög í frammi með að útvega verkamenn til sumarvinn- unnar við símalagninguna. Fór hann ekki alls fyrir löngu inn í Hrútafjörð, sjálfsagt aðallega í ráðningarferð. En ekki mun hann þó enn hafa fengið fleiri en unt 10 verkamenn. Sagt er að margir þeirra séu léttingsmenn, og þykir nijög misráðið af Guðjóni að festa slíka til vinnunnar. Sýnu betra, að hér væri autt sæti en illa skipað, þv'í sæmd landsmanna liggur við, og leitt til frá- sagna, að hinir innlendu verkamennirnir standi ekki hinuni útlendu nokkurn veginn á sporði hvað dugnað snertir. — Heilsufar manna hefir heldur verið með lakara móti í vetur. Kvefsótt og kverkabólga hafa stung- ið sér niður sumstaðar hér, og orðið fáeinum börnum að bana. Urn nýársleitið fluttist misl- ingasóttin að Stað Iiér í firðinum, vestan frá Djúpi. Var bærinn þegar settur i sóttkví, og dó veikin ,þar út. Má nú ætla, að héraðið sleppi við misl- ingafarsóttinna að þessu sinni. Seint í f. m. and- aðist merkiskonan Guðrún Jónsdóttir, húsfreya Þórðar Bjarnasonar á Kleifum, hér í firðinum. Hún var komin á áttræðisaldur. Guðrún sál, var hin mesta starfs- og hyggjukona, vönduð í dagfari ■og vel metin. Miklum áhyggjum valda peningavandræðin, ijafnt í þessu sem öðrum héruðum landsins, ekki síst þegar þar ofan á bætist, að verslunarhorfurn- ar eru slæmar. Talið er, að öll nauðsynjavara hækki allniikið í verði hér í verslunum í ár, og innlenda vai in lækki jafnframt. Það er vel skilj- anlegt, að kaupmenn vilji reyna að jafna hallann, sem þeir urðu fyrir á versluninni síðastliðið ár. Mælt er að Riis kaupmaður hafi orðið fyrir mikl- um skaða á innlendu vörunni frá í fyrra, ogsölu- deildin hér, eign ýmsra bænda, ekki síður, auk annars tilfinnanlegs eignatjóns, sem hún hefirorð- ið fyrir, að sögn kaupstjóra sjálfs. Það er ekki lítið áríðandi, að stjórnendur slíkra innlendra versl- unarfyrirtækja séu verulega hyggnir og ráðdeild- arsamir menn, en alloft vill til, að misbrestur verður á því, og kemur það illa niður. { bindindislegu tilliti er það gott héðan að segja, að útlit er fyrir að mun minna verði pantað af brennivíni í ár af héraðsbúum en undanfarið. Eymundur gamli í Bæ er búinn að fá þessa venju- legu pöntun sína, eina brennivínstunnu, en hinir pöntunarmennirnir munu allir ætla að skerast úr leik, og er það sannarlega gott og blessað. S. Rckstur landssimanna 1907. Tekjur: Símskeyti innanlands .... kr. » til útlanda .... — » frá útlöndum ... — Símasamtöl......................— Aðrar tekjur....................— Kr. Gjöld: 5770,00 10047,30* 5256,49 22 482,00 3 614,41** 47 170,20 Laun starfsmanna (þar með talinn landsímastjóriun), þóknun til landssímastöðva etc...........kr. 22087,25 Viðhald á símanum 10352,20 Önnur gjöld 9737,32 Kr. 42176,77 Reykjavík 11. Mars 1908. f. h. Iandsímastjórans. Smith. r'c-"CT í Ohio-ríkinu er bær, sem Columbus heitir, og er hann nefndur eftirColumb- usi sem Ameríku fann fyrir liðnum fimm öldum. Columbus er stór og fagur bær. Kljúfa liann víða sundurj stór og víð trjágöng. Þar má ganga svo klukku- stundum skiftir í skjóli skuggasælla lindi- og kastaníutrjáa. Við trjágöng þessi standa íbúðarhús smekklega gerð, girt yndislegum blómgörðum. í þessum snotru húsum búa einknm ríkir kaup- menn þar í bænum. í miðjum bænum er ferhyrntur flötur °g l'ggur járngirðing umhverfis hann. Á þeim fleti miðjum er stjórnarbygging- in prýdd fögrum súlum. Tré mörg og fögur eru í garði þessum og stórirblóm- runnar, og iðgrænir grasbalar brosa þar við sjónum á sumrin. Móbrúnir íkorn- ar velta sér þar í grængresinu og hoppa milli trjánna. Þeir eru svo gæfir sem tamdir væru, og bæjarbúum þykir minsta kosti mjög vænt um þá. En utan við þessa járngirðingu er mikill sægur af litlum drengjum, sem keppast um það við íkornana að ná hylli bæjarbúa, og mun á því sem hér fer á eftir sjást hversu þeim tekst það. *) Tar af erj kr. 1 200,00 fyrir veðursímskeyti uil útlanda. **) Viðtengingarejöld, símnefni etc. í Ameríku eins og víðar er það sið- ur, að menn snúa sér að götudrengjum og láta þá bursta skóna sína ef með þarf, eða menn kaupa blöð af þeim á götum úti. Eins og i öðrum bæum í Ameríku eru drengir þessir að heita má í hverju stræti í aðalbænum. Þeir hafa með sér dálítinn trékassa, skósvertu og skóbursta og dagblöðin undir hendinni eða í poka á öxlinni. F’eir gæta vand- lega að fótabragði þeirra sem um fara og ef þeim sýnast óhreinir skórnir, þyrp- ast þeir að vegfaranda og æpa: »Skó- burstari! Skóburstari!•.>., og ef þeim líst svo á manninn sem hann muni meta nokkurs viðburði þá sem gerast, romsa þeir upp nöfn dagblaðanna, sem þeir hafa til sölu. Oft tekst drengjunum að selja blöð sín þeim mönnum sem þeir bursta skó fyri.r. A einu götuhorninu andspænis þess- um fallega garði stóð fyrir fáum árum lítill drengur með herðakistil. Dag eftir dag stóð hann á þessu sama horni með skóburstann sinn og dagblöðin. Hann var fátæklega búinn, og mátti sjá á and- liti^hans fölu og mögru, að hann var heilsutæpur og átti við þröngan kost að búa. Pað var komið fram í Nóvembermán- uð og farið að kólna í veðri. þá gat hann ekki haldið hita á fótum sér öðru- vísi en að tifa hröðum fetum fram og aftur um gangstéttina, en fingurnir rauð- bláir af kulda réttu blöðin að þeim sem fram hjá fóru. En vegna þess að ýms- ir heldri borgarar bæjarins þektu Harry vel, þá gekk honum furðanlega að selja blöðin sín og margur koparskildingurinn innhentist honum fyrir þau. Aftur á móti virtist honum ekki ganga eins vel, að ná í að bursta skó manna. Hefir það líklega verið vegna þess að hann sýndist helst til veigalítill til vinnu. Á götuhorninu rétt á móti honum voru tveir stallbræður hans, og hötðu þeir sama verk fyrir stafni, en virtust þó hafa auga á litla skóburstaranum með herða- kistilinn. þegar þeir höfðu lokið viðað selja öll blöð sín hröðuðu þeir sér þvert yfir götuna og fóru að hrópa hátt og snjalt: »Skóburstari! Skóburstari« Verksmiðjueigandi einn mikilsmetinn, er smíða lét ýmiskonar vandaða vagna, til handa öðrum efnuðum íbúum bæar- ins, var vanur því að staðnæmast á hverjum morgni á götuhorninu þar sem Harry stóð og kaupa dagblað sitt þar, áður en hannfæri á skrifstofu sína. En einu sinni hitti hann svo á að. blöðin voru upp seld, og til þess að láta drengaumingjann ekki missa af þeim skildingum sem vant var að greiða honum sté verksmiðjueigandinn upp á skóburstarkassann hans og gaf með því í skyn að Harry ætti að fá að bursta skóna hans þann daginn. Báðir stallbræður Harry’s komu hlaup- andi að vörmu spori og fóru á hnén til að bursta skóna. Verksmiðjueigandinn vísaði þeim burtu og sagði: »Eg ætla að láta Harry litla kunn- ingja minn bursta skóna mína í dag, og engan annan!«

x

Templar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Templar
https://timarit.is/publication/532

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.