Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Page 16

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Page 16
eru launaðir láta í flestum tilfellum lág- launafólkið draga sinn vagn í kjarabar- áttunni, því þeir korna í kjölfarið og tína upp kjarabætur þeirra og bæta drjúgum hluta við. Endurteknar fréttir berast urn átök, ósamlyndi og jafnvel verkföll vegna mis- sættis milli þeirra sem uppfræða börn og æskufólk þessa lands, innan skóla og menntastofnana. Ef horft er til listsköp- unar virðist heyra til undantekninga ef friður ríkir innan einnar listgreinar i einu. Túlkendur lista gera háværar kröfur um að þjóðfélagið taki þá á framfærslu, sem ljúka námi í sérskólum þeirra og er ekki horft í fjölda nemenda eða þörf t.d. at- vinnuleikhúsanna, né getu ríkissjóðs. Flugnienn berjast við flugmenn og sameinaðir eða sundraðir bíta þeir í skjaldarrendur, þegar þeir eiga viðskipti við flugrekendur. En margir þeirra og of margir atvinnurekendur, þegar á heildina er litið virðast ekki gera sér grein fyrir því að aðeins tæpir tveir áratugir eru þar til árið 2000 gengur í garð. Margir forystu- menn launþega láta hjá líða að veita fræðslu um grundvallarþarfir atvinnu- rekstrar, en nota blekkingar og slagorð til misbeitingar launþegasamtakanna í póli- tískum til gangi. IV Góðviljaðir menn vilja helst ekki koma nálægt prestskosningum vegna þeirra vopna, sem þar er beitt og sára sem allir hafa hlotið þegar upp er staðið. Eða er nokkur þegar farinn að heyra um hinn lakari kost þeirra, sem nefndir hafa verið til biskupskjörs? Þótt síðustu forsetakosningar færu skaplega fram, minnist nokkur kosning- anna ’68, þegar rógurinn og níðið tví- mennti á lygameri landsmanna? Og hvað eru margir úr röðum ráðandi afla heilbrigðismála sem fylgja í fram- kvæmd hugarfari og hugsjónum Alberts Schweitser og Florence Nightingale? Hvernig er samkomulagið milli þeirra gler- og palesanderhallarmanna? Hvað verða mörg sneiðmyndartæki hér á landi eftir tvö ár og hve mikið af nýju stofn- anahúsnæði sem ekki nýtist meðan sár skortur og neyðarástand ríkir á öðrum sviðum? Svona má lengi halda áfram en þegar upp er staðið er eitt sameiginlegt: Allir eru sammála um að gera kröfur til annarra — en sjálfs sín. Um okkar eigin stétt — sjómannastétt- ina er best að vera fáorður. Þegar sú staða er komin upp að menn fá á sig ámæli fyrir 12 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ að vinna mikið og reyna að vinna vel, er illa komið í okkar málum. Sundrung og tortryggni eru of ráðamiklir húsbændur. Úr þeirra vist þarf íslensk sjómannastétt að komast sem fyrst — eins og þjóðin öll. Pétur Sigurðsson 2. áfangi Hrafnistu í Hafnarfirði í smíðum. .lócl Fridriksson, Reyðaríirdit Sjómenn Islands Sjómenn íslands, hraustar hetjur, hugumstórar hverja stund, sigla um Ægi sumar og vetur, i svaðilförum þroskast lund. Þó í byljum gnötri gnoðin í grimmdarfrosti og reiðum sjó, fyrir dyrum vís er voðinn, vex þeim kjarkur, þrek og ró. Þeir, sem sœkja gull í Grœði, svo geti lifað íslensk þjóð, hrekjast oft um hrannarsvœði, en hafa fullan dug og móð, þrauka við störfin þreyttir, kaldir, þúsund hœttur berjast við, sigra þrautir saman valdir, sjómenn íslands, kappalið. Ef gyllir sól og gott er veður, gnoðirfylla á skammri stund, harla margt þá hugann gleður, hugsa um vina endurfund. Sigla um Ægi sumar og vetur, í svaðilförum þroskast lund, sjómenn íslands, hraustar hetjur hugumstórar hverja stund.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.