Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Page 38

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Page 38
Óskar og Þóra. skýrðum hann síðan Emmu og bátinn höfum við gert út saman í tæp 10 ár. Þetta skeði þannig að ég labbaði út í Útvegsbanka til þess að tala við Björgvin í Glettingi, var að huga að bát, en í leiðinni hitti ég Jón í Bólstaðarhlíð Björnsson og fer að rabba um málin við hann. Hann spurði hvað ég ætlaði að láta bátinn heita og ég sagði honum að ég væri að velta fyrir mér Þóru nafninu, móðurnafni mínu. Hann benti mér þá á Emmu nafnið og sagði það hafa verið mikinn happabát, Emmuna sem pabbi sinn hefði átt hlut í. Ég veit ekki hvort hann vissi að konan mín heitir Emma, en það nafn varð úr og það er einnig tilviljun hvernig Addi Palli gerðist meðeigandi minn. Emma var að fara til þess að færa konu Adda Palla, Arnórs Páls ValdLmarssonar, á sængina og þá datt mér hann í hug. Ég rauk af stað til hans þar sem hann var að múra í húsinu sínu og bar upp erindið. Honum leist vel á þetta, sló til og siðan hefur þetta gengið stórvel með tíu ár að baki.“ „Þrautseigari en andskotinn“ Matthías er elztur þeirra bræðra, fer ser hægt, en er þrautseigur eins og aðrir af þessari ætt, þrautseigari en andskotinn eins og sagt er í öllum ærlegum verstöðv- um. Hann byrjaði í útgerð upp úr 1973, keypti þá Metuna með Björgvin Ólafssyni og þeir félagar endurbyggðu hana vendi- lega, byggðu nýtt þilfar og nýja brú, en þá komast Mangi bátabani í skipið og dæmdi það úr leik. Þar féll Stóridómur þótt oft hafi dyntir þótt ráða í meðferð skipa gagnvart grun um fúa. Þessir ungu menn fóru illa út úr upphafinu, en réðust í að láta byggja nýtt skip. 150 tonna stálskip sem var skýrt Bylgjan. Þeir voru með þeim fyrstu sem lentu í hinum nýju lánakjörum sem hafa verið dragbítur og draugagangur á alla uppbyggingu útvegs í landinu og það má heita undravert hve þessir ungu rnenn hafa staðið af sérdrottnun kerfisins og misbeitingu, en um langan tíma má segja að lánasjóðirnir hafi þjóðnýtt þessa ungu athafnamenn og aðra í sömu spor- um, kreist út úr þeim ágóða af þeirra dugnaði umfram öll eðlileg mörk. Matthías byrjaði seint á þessari vertíð, en var kominn með 1000 tonn i maíbyrj- un. Kippir í kynið, drengnum þeim. „Ég kyngi, en með frekjunni hefst það“ Ég spjallaði við þá feðga stundarkorn saman, en það var auðvitað ekki hægt að ná þeim öllum saman í landi, því Kristján var á sjó á Emmu og veiddi á línuna sem hann hefur haldið sig við í vetur þrátt fyrir aflahrotu og æðandi fisk um allan sjó. Þeir hafa fiskað jafnt og þétt á línuna og verka aflann sjálfir og það hefur gengið vel. Það þarf bein til þess að halda sínu striki á línu þegar mokað er upp í önnur veiðarfæri, en það er skiljanlegt af þessari ætt. I spjalli við þá feðga, Óskar. Matta, Iðnir við kolann. Óskar Matthíasson jr„ 6 ára, sonarsonur útvegsbóndans og afia- klóarinnar, búinn að kvitta fyrir sínum fyrsta hlut fyrir innlagðan fisk hjá Vinnslustöð Vestmannaeyja g.kr. 5715. 32 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.