Eimreiðin - 01.07.1926, Blaðsíða 59
^■MREIÐIN
NÁM OG STARF
235
v®ri sú heimskulega skoðun almenn, að það sé ekki karla,
að fást við matreiðslu.
Eg hef í þessum hugleiðingum gert ráð fyrir nokkrum
Eeimilisiðnaði hér á landi. Ég veit það vel, að heimilisiðnað-
'num íslenzka hefur hnignað mjög frá því sem hann áður var
°9 að menn bera löngum fyrir sig fólksfæð heimilanna. En
V>ns merki eru um það, að íslenzkur heimilisiðnaður muni
brátt eflast á ný, sniðinn eftir tímans högum, og þegar er
að ræða um uppeldi æskulýðsins, verður að miða við það,
sem líkur eru til að verði, engu síður en það, sem er, því að
allar umbætur þurfa að hafa nokkurn tíma fyrir sér. Og
Sannarlega er heimilisiðnaðarmálið eitt af merkilegustu menn-
mgarmálum þjóðarinnar, því að þau heimili, er geta skapað
Sem flest sjálf, það er þarf til gagns og prýði innan stokks,
Verða gróðurreitir margs þess, sem bezt er í fari hverrar
kióðar: skapandi samvinnu anda og handar, sjálfstæðrar
smekkvísi, heilbrigðs metnaðar, sjálfsvirðingar og sjálfstæðis.
^ú sál, sem lætur aðra sníða sér haminn, fellir flugfjaðrirnar
aður en varir. Með því að gera heimilisiðnaðinn að þætti í
uPpeldi ungu kynslóðarinnar, fær hvorttveggja ný þroska-
^kilyrði. —
Eg hef þá minst á helztu innanhússstörfin, sem börn geta
þátt í. í utanhússstörfum taka þau eins og menn vita
SPrna þátt, eftir því sem kraftar þeirra leyfa, en mörg af
j^itn störfum eru erfiðari en svo, að börnin geti unnið þau
lnnan við fermingaraldur. Og flest eru þau þannig vaxin, að
körn gera fremur að aðstoða við þau en að þau geti sjálf-
st®tt leyst þau af hendi. Engu að síður kynnast þau öllum
Verkum, sem unnin eru á heimilinu, og fá þannig undirbúning
Utldir að vinna þau síðar, þegar kraftarnir koma.
Þegar ég tala um það, í hvaða störfum börnin geti tekið
kútt á heimilunum og þar með lært að vinna, þá vona ég
enginn skilji orð mín svo sem ég vilji gera börnin að
aiI>skonar vinnuþrælum heimilanna, eða láta vinnuna hafa af
Peim þann tíma, er þau þurfa að verja til bóknáms, hvíldar
°9 hressingar. Það sem fyrir mér vakir er að lofa börnunum
^að, sem þau þrá mest, en það er að vinna þau verk, sem
Pau sjá fyrir sér og geta unnið. En um leið ætlast ég til að