Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1966, Page 76

Eimreiðin - 01.01.1966, Page 76
64 EIMREIÐlN hjálparvana og ofurseldir þýzkum áhrifum. Eigi voru tök á því fyrir Suður- Jóta að komast hjá að inna af hendi herskyldu suður í Þýzka- landi, en á hinn bóginn voru synir landsins sendir hundruðum sam- an norður í lýðskóla Askov til að teyga þar ást á gamla landinu. Fólk gat ekki tálmað því, að pré- dikað væri á þýzku í kirkjunum, en það gat myndað fríkirkjusöfn- uði og hlýtt messum, sem fóru fram á dönsku, ef það vildi standa straum af kostnaði við þær upp á sitt eindæmi. Urn skeið virtust þýzk áhrif vera skefjalaus í Suður-Jótlandi. En hin síðari ár voru menn að vona, að tala mætti um straumhvörf í þeim efnum. Nú var dönsk tunga þar jafnvel í sókn. „Við sækjum á, þótt sumir rnenn ætli, að í Suður-Jótlandi verði aldrei um annað en hjaðningavíg að ræða,“ sagði fyrirlesarinn. ,,Hvenær stundin kemur, veit eng- inn. En eins og við vitum, að eitt sinn skal hverr deyja, þá er jafn- víst, að hvert stórveldi rennur skeið sitt og hrynur að lokum. Og þegar þýzka okinu léttir, þá verð- um við frjáls." Erindi Suður-Jótans var laust við ofstæki. Hann virtist vera raun- sær maður, og málið lá ljóst fyrir honum. Ekki leyndi sér, að hann var bjartsýnn á framtíð landa sinna sunnan Kóngsár. Hann hafði rík áhrif á okkur, og undir borð- um um kvöldið töfðum við lengi, lengi og ræddum um landið missta. Menn tóku brátt að segja sögur. Ludvig Schröder sagði af bóndan- um, sem gat ekki sætt sig við, að dóttir hans æli barn á þýzkri jörð, og reisti því til bráðabirgða skála handa henni á norðurbakka Kóngsár. Yfir dyrnm skálans fflál- aði hann orðið: Frelsi. Jacob Appel, sem áður átti heima í Suður-Jótlandi, liafði flu' ið til Danmerkur til þess að losna við að inna herskyldu af hendi í Þýzkalandi. Eftir það hafði hann ekki árum saman hætt á að henn- sækja foreldra sína. En að lokum hafði þó löngunin borið hann ofurliði, og hann fór dulbúinn sem kona heim til þeirra. Fólki varð tíðrætt um, að ekki mætti draga danska fánann að hun í Suður-Jótlandi og dönsku fána- litirnir væru litnir hornauga þal af Þjóðverjum, enda leiddi það stundum til ofsókna. Þó gat öðru hverju að líta svarthvíta fána a flaggstöngum, sem voru málaðar rauðar og hvítar. Fólk talaði uffl rauðhvítu fúksíurnar, sem voru nu eftirlætisblóm Suður-Jóta og voru í hverjum glugga, og um rauðmál- uðu húsin með hvítum hornum við samskeytin, — áður voru hus þessi máluð alhvit. Sagt var af fjörugum mannamót- um, er var slitið í miðju kafi a[ þýzkri leynilögreglu, þar eð danski jjjóðsöngurinn hafði verið sung- inn. En margræddast varð fólkinu um hina hrjúfu bændur, sem tíð- um blátt áfram buðu hættunn* heim, líkt og jjeirn fyndist hin si- fellda gát, sem höfð var á þeim a hundingjunum, æsandi leikur. En sumar sögurnar voru A^a
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.