Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1922, Blaðsíða 7

Ægir - 01.06.1922, Blaðsíða 7
ÆGIR 73 III. KAFLI. Um rétt til sldpstjórnar og stýrimensku i utan- og innanlandssiglingum á íslenzku fiskiskipi og rélt til skipstjórnar og stýri- mensku á islenzku verzlunarskipi í inn- anlandssiglingum eigi yfir 300 rúmlestir. 9. gr. Rétt tíl að vera skipstjóri í inn- an- og utanlandssiglingum á íslenzku fiskiskipi og í innanlandssiglingum á ís- lenzku verzlunarskipi, eigi yfir 300 rúm- lesta að stærð, hefir sá einn, sem fengið hefir skipstjóraskírteini á fiskiskipi. 10. gr. Sá einn getur fengið skipstjóra- skírteini á fiskiskipi, sem: a. staðist hefir fiskimannapróf eða far- mannapróf við stýrimannaskólann í Reykjavík; b. hefir verið slýrimaður i 18 mánuði á fiskiskipi, sem er stærra en60rúm- lestir, eða verið skipstjóri (formaður) á skipi yfir 20 rúmlestir, og af þeim tíma minst 12 mánuði stýrimaður á gufuskipi, ef um gufuskip cr að ræða; c. er fullveðja; d. hefir eigi verið dæmdur fyrir nokk- urt það verk, er svívirðilegt er að almenningsáliti; e. sannar, að sjón hans sé svo fullkom- in, sem nauðsynlegt er fyrir stýri- menn. 11. gr. Rétt til að vera stýrimaður á íslenzku fiskiskipi i innan- og utanlands- siglingum og stýrimaður á íslenzku verzl- unarskipi í innanlandssiglingum eigi yfir 300 rúmlesta aðstærð, hefir sá einn, sem fengið hefir stýrimaunsskírteini á fiski- skipi. 12. gr. Sá einn getur öðlast stýrimanns- skírteini á fiskiskipi, er: a. hefir staðist fiskimannapróf eða far- mannapróf við stýrimannaskólann i Reykjavík; b. hefir verið háseti minst 36 mánuði eftir 16 ára aldur, og af þeim tíma annaðhvort 18 mánuði báseti á fiski- skipi stærra en 60 rúmlestir eða 12 mánuði skipstjóri á skipi stærra en 20 rúmlestir og 6 mánuði háseti á fiskiskipi stærra en 60 rúmlestir; c. hefir eigi verið dæmdur fyrir nokk- urt það verk, sem svívirðilegt er að almenningsáliti; d. sannar, að sjón hans sé svo fullkom- in, sem nauðsynlegt er fyrir týri- menn. IV. KAFLI. Um rétt til skipstjórnar og stýrimensku á verzlunarskipum yfir 300 rúmlesta i utanlandssigltngum. 13. gr. Rétt til að vera skipstjóri í ut- anlandssiglingum á íslenzku verzlunar- skipi og skipstjóri í innanlandssiglingum á íslenzku verzlunarskipi, sem er stærra en 300 rúmlesta, hefir sá einn, sem fengið hefir skipstjóraskírteini í utan- landssiglingum. Sé um gufuskip að ræða, hefir sá einn réttinn, sem fengið hefir einnig skírteíní það, er um getur í 15. grein. 14. gr. Sá einn getur öðlast skipstjóra- skírteini í utanlandss glingum, er: a. er fullveðja; b. hefir eigi verið dæmdur fyrir nokk- urt það verk, er svívirðilegt er að almenningsáliti; c. sannar, að sjón hans sé svo fullkonir in, sem nauðsynlegt er fyrir stýri- menn; d. hefir staðist hið almenna stýrimanna- próf við stýrimannaskólann í Reykja- vík; e. hefir verið stýrimaður eigi skemur en 24 mánuði á verzlunarskipi i ut- anlandssiglingum, og af þeim ttma eígi skemur en 12 mánuði yfirstýri- maður, eða einn stýrimaðnr á verzl- unarskipi f utanlandssiglingum, eða

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.