Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1929, Blaðsíða 16

Ægir - 01.07.1929, Blaðsíða 16
150 ÆQIR t Kaupmaður Pétur J. Thorstensson. andaðist að heimili sínu i Hafnarfirði, laugardaginn 27. júlí s. 1. Jarðarförin fór fram liinn 5. ágúst og var hann jarðaður í Reykjavík. Ægir mun flytja æfiágrip þessa merkisnianns, hið fyrsta. ónýt urðu, voru 4 gufuskip og 17 mólor- skip. Af þessum mótorskipum voru 14 frá Troms, 2 frá Finnmörku, og 1 frá Nordland, eitt af stærstu selveiðaskip- um Noregs. Af spiki fengust alls 1928, 6630 smá- lestir, auk margs annars, sem á sel- veiðunum 1928 veitt var og gaf peninga í aðra hönd. Metið til peninga varð all- ur afli selveiðaskipa 1928, 4.378.000 króna virði og hefur úthaldið borið sig' nokkurn veginn þetta ár. Fiskiveiðar í Canada 1928. (Samkvæmt skýrslu aðalræðismanns Dana í Montreal 26. júní 1929). Samkvæmt nýútkominni fiskiskýrslu fyrir Canada yfir árið 1928 er það aug- ljóst, að afkoma fiskiveiðanna liefir verið allgóð. Útflutningur sjávar og' ferskvatnsfiska nam 55 miljónum doll- ara og er það 5,5 miljónum meira en árið á undan. í sambandi við þetta er vert að geta þess, að fjármagn það, sem stendur i skipum og' veiðarfærum í sambandi við haffiskið, hefir lækkað um 1.1 milj. dollara og var 1928 25.7 miljónir, aftur á móti hefir fjármagn það, er stendur í ferskvatnsveiðunum aukist litilsháttar á árinu (var 5,4 mil- jónir 1928). Það er líka eftirtektarvert að tala skipa þeirra, er veiðarnar stunda 1928 hefir lækkað; þannig hefir botnvörp- ungum fækkað niður i 11 úr 17 árið 1927, línuveiðagufskipum frá 11 til 9, seglskipum og mótorskipum úr 1561 niður í 1422, með tilsvarandi lækkun á fjármagni því, sem stendur í þessum hluta fiskiflotans.- Aftur á móti hefir árabátum fjölgað um 300 á árinu og voru 1928 14877, ennfremur stunduðu 15135 litlir mótorbátar veiðar 1928 en 15944 árið áður. 62782 menn höfðu at- vinnu af fiskiveiðum og er það 630 manns færra en árið á undan. Fjármagn það, sem stendur i niður- suðu og fiskverkunarstöðvum hefir aukist um 1 miljón og' var 1928 25.5 miljónir. Þó hefir þessum stöðvum fækkað um 60 á árinu og eru nú 713, tala stöðva þeirra, er fást við niður- suðu á humar hefir þannig lækkað úr 438 niður í 376 og lax-niðursuðuverk- smiðjum fækkað um 81 niður í 66. Fiskverkunarstöðvum hefir aftur á móti fjölgað úr 199 í 205. Tala manna þeirra, sem við verkun fást i landi var 15173 árið 1928 en 16697 árið áður. Framleiðslan skiftist þannig á milli hinna einstöku tegunda. 1928 1927 miljónir doll. miljónir doll. Lax . . 17.9 15.1 Þorskur .... . . 6.3 4.9 Humar . . . . . . 5.2 5.4 Lúða . . 3.7 4.3 Síld . . 3.1 3.4 Sardinur . . . . . 2.6 1.8 Hvítfiskur . . . . 2.2 2.2 Af allri framleiðslunni er markaðs- verð sjávarfiska 46.6 miljónir 1928, en 41.9 miljónir árið á undan. Verðmæti

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.