Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1934, Blaðsíða 9

Ægir - 01.04.1934, Blaðsíða 9
ÆGIR 95 Stjórn kaupstaðarins (bls. 400—491), 7. kafli: Atvinnumál (bls. 492—578), 8. kafli: Heilbrigðismál (bls. 579—592), 9. kafli: Kirkjumál (bls. 593 —613), 10. kafli: Skóla- og menningarmál (bls. 614—648) og 11. kafli: Yfirlit (bls. 649-662). Flestum köflunum er skipt í marga smærri kafla, svo að bókin er mjög skipuleg og hægt að flnna hvað eina, sem maður vill lesa um undir eins, en auk þess fylgir skrá yfir öll mannanöfn, sem koma fyrir í bókinni, myndaskrá og heimildaskrá. Um langfæst af því, sem þessi bók fjallar, hefur áður verið ritað, og er því hér um frumrannsókn að ræðaaðmiklu leyti. Ætti þessi bók þvi að verða öllum fræðimönnum kærkomin. Auk þess sem hún segir sögu Hafnar- fjarðar frá elztu tíð, varpar hún ljósi yfir mörg atriði í verzlunar- og atvinnu- sögu Islands, því að höf. hefur gættþess að hafa sögu landsins í baksýn. Ekki er hægt að krefjast þess með neinni sanngirni, að öll kurl komi til grafar í bók sem þessari og að þar sé getið um ýms smáatriði, sem gerst hafa í bænum á síðari tímum. Hitt er meira um vert, að gefið ségott yfirlit um helztu framkvæmdir þar, menningu o. þ. h., og það virðist vera gert í bókinni. Þann- ig gefur hún hvarvetna glögga hugmynd um höfuðlínurnar í sögu Hafnarfjarðar, án þess að kafna í aukatriðum eða verða langdregin um of. Við, sem fæddir erum í Hafnarfirði og erum nú orðnir gamlir menn, hefðum kosið að sjá á prenti, eittbvað af þeim mörgu sögum og skrítlum, sem voru, ef svo má að orði komast, sérstök eign þorpsins, einkum frá árunum 1874 til aldamóta. Gamlir Hafnfirðingar hittast vart svo þann dag í dag, að ekki beri þær á góma og þegar einhver byrjar, stendur ekki á þeim næsta að halda skemmtuninni við. Það mætti minnast á hina afburða fiskimenn (handfæri) með nöfnum, því á sínum tíma voru þeír engu síður þekktir meðal útgerðarmanna og félaga sinna, en togaraskipstjórar eru nú, en engin sanngirni mælir með, að slíkt sé heimtað í bók, sem hér um ræð- ir, jafn vísindaleg og hún er, enda erum við nú orðnir fáir, sem njótum þess, að endurminningar okkar sjáist á prenti. Aðrir siðir, áhugi og hugsunarháttur rik- ir nú í Hafnarfirði en á okkar uppvaxt- arárum. Við keyptum ekki skemmtanir dýrum dómum, heldur fundum þær upp sjálfir, þær voru af ýmsu tæi og likuðu vel. Kosningar til Alþingis voru líkt og aðrir skemtidagar, einhver bauð sig fram, og vildi hann á þing fara, þá varaðað- stoða hann og kjósa, því það var upp á hans ábyrgð hvernig hann kláraði það allt. Okkur, sem uppaldir erum í Hafn- arfirði, þykir vænt um hann og erum þakklátir fyrir bernskuár okkar. Búksorg þekktist ekki, þrátt fyrir fátækt víða hvar, því fjörðurinn veitti björg i ríkum mæli og hún var engin slorfæða, því rauð- sprettan i Hvaleyrartjörn og firðinum var annáluð, jafnvel svo að stórhöfðingj- ar og alþingismenn úr Reykjavík, gerðu sér ferðir suður í Fjörð, til þess að fá að smakka steikta rauðsprettu, með til- heyrandi snöpsum og bjór. Á vetrum komu ufsahlaup og síld á vorin, að við ekki nefnum sjóbirting fyr- ir utan lækjarósinn. Meðan fullorðna fólkið var í vinnu eða hafði annríkt heima fyrir, veiddu strákarnir i pottinn og um skemmdan fisk var ekki að ræða. Það er örðugt verk fyrir framandi mann að komast að því, sem okkur gömlu körl- unum þætti skemmtilegast að lesa, því út á spurningar í þá átt, gefa gamlir Hafnfirðingar fá svör og margt kemur

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.