Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1941, Blaðsíða 5

Ægir - 01.07.1941, Blaðsíða 5
Æ G I R 175 svo starfssvið sjóðsins og' veikt svo starfs- skilyrði hans, að ekki voru nokkrar líkur til þess, að hann gæti bætt úr brýnustu þörf, var loks hafizt handa um að efla hann að nokkru ráði. Tvö frumvörp koinu fram á síðastia Alþingi, er bæði beindust í þessa átt. Yar annað þeirra flutt af sjávarútvegsnefnd neðri deildar, en hitt af Pétri Ottesen. Margt af því, sem drepið er á í þessari grein, styðst við greinargerðir þessara frumvarpa. Það mun hafa orðið að samkomulagi milli Péturs og' sjávarútvegsnefndar N.d., að Pétur tæki sitt frumvarp aftur, þegar frumvarp nefndarinnar kom fram, því að hún hafði tekið upp í sitt frumvarp ýmis alriði úr frumvarpi Péturs, þótt frumvarp hans gengi miklu lengra og væri líklegra til að efla sjóðinn svo um munaði, ef að lögum hefði orðið. Aðal breytingarnar, sem frumvarp nefndarinnar fól í sér, voru: að við tekj- ur sjóðsins skyldu bætast helmingur þess útflutningsgjalds, sem ríkissjóður lekur árlega af livers konar sjávarafurðum, að vextir af lánum sjóðsins skulu vera 4%, i stað 5V2% áður, að Fiskveiðasjóði sé heimilt að gefa út handhafavaxtabréf allt að 4 milljónum kr. í stað l1/^ milljón, og að lánsheimild rikissjóðs til kaupa á þessum bréfum bækki að sama skapi. Auk þessa voru ýmsar veigaminni breyt- ingar. Flest -atriði frumvarpsins voru samþykkt óbreytt, nema tvö þau mikil- vægustu. Vextirnir fengustiekki lækkaðir nema niður í 4^%, og að aðeins fjórð- ungur þess útflutningsgjalds, sem ríkis- sjóður tekur árlega af hvers konar sjáv- arafurðum, skuli renna sem tekjur til Fiskveiðasjóðs. I meðförum þingsins var hætt inn í frumvarpið mikilsverðri hreyt- ingu, sem var í frumvarpi Péturs, en það var, að hámark lána til stofnunar iðnfvrirtækja í sambandi við fiskveiðar skuli vera 75 þús. kr. i stað 35 þús. kr. Þær breytingar, sem gerðar hafa verið á fiskveiðasjóðslögunum með þessari sam- þykkt Alþingis, efla vitanlega sjóðinn nokkuð og treysta talsvert aðstöðu þeirra, seni lán þurfa að fá úr honum, en þó Iivergi nærri í samræmi við það, sem orð- ið hefði, ef frumvarpið hefði verið sam- þykkt óbreytt, að viðbættu því atriði, er sett var inh í það. Eins og áður er getið, var miklu lengra gengið í frumvarpi Péturs Ottesen en sjávarúlvegsnefndarinnar í að efla sjóð- inn og bæta úr lánsþörfinni, og um leið að færa lánsfvrirkomulagið i það horf, sem viðunandi og hagfellt getur talizt. í frumvarpi Péturs var meðal annars gert ráð fvrir þessum breytingum, auk þeirra, sem teknar voru upp í frumvarp sjávarútvegsnefndar: að tekjur sjóðsins voru auknar með því að hækka fisk- veiðasjóðsgjaldið úr %% í 2%. Sam- kvænit útflutningsmagni og verðlagi sjávarafurða undanfarinna 9 ára, reikn- aðist honum til, að 2% fiskveiðasjóðs- gjald mundi gefa sjóðnum um 800 þús. kr. tekjur á ári. Út á ný skip með nýj- um vélum megi lána allt að % virðinga- verðs í slað helmings, en sé skipið smíð- að innanlands, inegi hámark lánsins nema allt að % virðingarverðs i slað %, enda komi þá til viðbótar trygging, sem sjóðstjórnin metur gilda. Að lengsti láns- tími sé 15 ár í slað 12 og hámarkslán sé 150 þús. kr. í stað 50 þús. kr. Hefðu þessar breytingar verið gerðar á Fiskveiðasjóði og fiskveiðasjóðsgjaldið verið hækkað upp í 2%, má telja liklegt, að þá fyrsl hefði svo verið að lionum húið, að hann gæti orðið sjávarútvegin- um. sú hjálparhella, sem hann þarf og á að vera. Enginn efi er á því, að stofnlána þörf bátaútvegsins eykst hröðum skref- um á næstunni, og má mikið vera, ef ekki

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.