Tímarit lögfræðinga - 01.01.1964, Blaðsíða 7
TIMARIT LOGFRÆÐINGA
1. hefti 1964
I
I
DR. JUR. BJÖRN ÞÓRÐARSON
MINNING
Dr. Björn Þórðarson andaðist hér í borg 25. okt. 1963
eftir alllanga vanheilsu. Hann var fæddur 6. febrúar
1879 að Móum á Kjalarnesi. Foreldrar hans voru Þórð-
ur hreppstjóri Runólfsson og kona hans Ástríður Joclir
umsdóttir frá Skógum í Þorskafirði. Að Móum var
myndarheimili, en ekki auður fjár fremur en þá var á
flestum heimilum hér á landi. Dr. Björn mun hafa þótt
efnilegur til náms og var því settur í skóla eins og það
var kallað. Hann lauk góðu stúdentsprófi vorið 1902.
Lögfræðiprófi lauk bann við Hafnarháskóla í febrúar
1908 með góðri I. einkunn. Sumarið eftir var liann full-
trúi bæjar- og héraðsfógetans i Bogense- og Skovby-
héraði á Fjóni, en fluttist hingað til Reykjavíkur um
liaustið. Á þessum tímum voru yfirdómara- og sýslu-
mannsembætti helzt þeirra embætta hér á landi, er lög-
fræðipróf var talið máli skipta um, svo og málflutn-
ingsstörf við Landsyfirdóminn. Er dr. Björn kom heim
voru i gildi lög nr. 32, 20/10 1905, en með þeim hafði
verið rýmkað um rétt til málflutnings fyrir yfirdóm-
inum, þannig, að hver sá, er lokið hafði lagaprófi við
Hafnarháskóla, gat fengið levfi þegar í stað. Kgúrsk.
19/3 1858 var þó enn í gildi að því leyti, að tveir skip-