Tímarit lögfræðinga - 01.01.1968, Blaðsíða 51
Aðalfundur.
Hinn 29. desember 1967 var aðalfundur félagsins hald-
inn. Formaður félagsins, Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
flutti skýrslu um störf stjórnar og félagsins, og gjald-
keri félagsins, Einar Bjarnason, gerði grein fvrir reikning-
um og fjárhag þess.
Stjórnarkjör fór þannig, að Þorvaldur Garðar Krist-
jánsson var endurkjörinn formaður félagsins með sam-
hljóða atkvæðum. Þórður Björnsson, yfirsakadómari, var
einnig endurkjörinn varaformaður með samhljóða at-
kvæðum. Meðstjórnendur voru kosnir: Arnljótur Björns-
son, hdl., Einar Bjarnason, ríkisendurskoðandi, Theodór
B. Líndal, prófessor, Tómas Arnason, hrl. og Guðmundur
Jónsson, borgardómari.
A fundinum tók Bjarni K. Bjarnason, borgardómari, til
máls og ræddi um bókasafnsmál og tillögur þær, sem
fram hafa komið um sameiningu Landsbókasafnsins og
Háskólabókasafnsins. Um það efni var síðan samþykkt
svohljóðandi tillaga.
Aðalfundur Lögfræðingafélags Islands haldinn 29. des-
ember 1967 bendir á nauðsyn þess, að stórauka vísinda-
legan bókakost hér á landi. Telur fundurinn vel viðeig-
andi, að minnast ellefu alda afmælis Islandsbyggðar árið
1974 með þvi að reisa nýja bókhlöðu fyrir vísindarit, er
veiti sem bezta aðstöðu til fræði- og vísindaiðkana.
Fundarstörfum á aðalfundinum stjórnaði Hákon Guð-
mundsson, yfirborgardómari.
Guðmundur Jónsson.
Tímarit lögfræðinga
49