Tímarit lögfræðinga - 01.05.1976, Page 9
HÖRÐUR ÞÓRÐARSON
Ekki get ég sagt, að mér kæmi það mjög á
óvart, er ég spurði lát Harðar Þórðarsonar hinn
6. desember sl. Hörður hafði um nokkurt skeið
þjáðst af sjúkdómi þeim, er að lokum varð hon-
um yfirsterkari þrátt fyrir ríkan lífsvilja. Þó er það
svo, að þótt dauðinn sé óumflýjanlegur okkur
dauðlegum mönnum og okkur kunni að gruna að
hverju stefnir, fer ekki hjá því, að okkur bregði
er ættingjar eða kunningjar falla frá.
Herði kynntist ég fyrst, þegar ég var barn að
aidri. Hann var tiður gestur á heimili foreldra
minna, en faðir minn og hann voru áhugasamir
bridgespilarar og spilafélagar um langa tíð. Eft-
ir lát föður míns þurfti ég oft að leita til Harðar
vegna ýmissa mála, og brást þá ekki, að hann
var ávallt boðinn og búinn til að leysa minn
vanda.
Hörður gat á stundum verið stuttur í spuna og afundinn. Fann ég, að ekki
féll öllum að eiga við hann orðaskipti. En fljótt breyttist tónninn ef honum
var svarað í sömu mynt og var þá grunnt á gamanyrðum.
Hörður lauk stúdentsprófi árið 1927 og lögfræðiprófi frá Háskóla islands
1933. Ekki átti það þó fyrir honum að liggja, að stunda mikið bein lögfræði-
störf. Hann réðst að loknu prófi í þjónustu Landsbanka Islands og starfaði
þar, uns hann tók við starfi sparisjóðsstjóra við Sparisjóð Reykjavíkur og
nágrennis, en því gegndi hann til hinstu stundar.
Hörður var sonur Þórðar Sveinssonar yfirlæknis á Kleppi og konu hans
Ellen Johanne f. Kaaber, og var elstur sjö systkina, fæddur 11. desember
1909. Hann kvæntist Ingibjörgu Oddsdóttur 24. nóvember 1934, og áttu þau
tvö börn, Þórð lækni, sem kvæntur er Sólrúnu Jensdóttur, og Önnu, sem er
gift Leifi Dungal lækni.
Frú Ingibjörgu og börnum þeirra sendi ég hugheilar samúðarkveðjur.
Kristján Torfason.
3