Tímarit lögfræðinga - 01.05.1976, Page 11
iskrar lögfræði. Þess vegna kaus hann að hafa samvinnu við annan lögfræð-
ing um rekstur skrifstofunnar til að fást við almenn lögfræðistörf, og vildi
hann veg skrifstofunnar ávallt sem mestan á því sviði. Sjálfur var hann jafn-
vígur til hvors starfsins, sem var. Fasteignasala féll einfaldlega betur að
skaphöfn hans og eðliskostum.
Ég þekkti Vagn vel eftir margra ára náið samstarf og tel hann í hópi mæt-
ustu manna, sem ég hefi kynnst. Hann var dulur maður og dagsfarsprúður,
manna kurteisastur og tillitssamastur, hlýr í viðmóti, hver sem í hlut átti,
góðviljaður og greiðvikinn. Hann var víðsýnn maður og bjó yfir ríkri rétt-
lætiskennd, laus við dómgirni um náungann og umtalsfrómur. Starf sitt
hafði hann í hávegum og lagði sig fram um að rækja það sem bezt. Hann
var strangheiðarlegur og bar í brjósti ríka ábyrgðartilfinningu gagnvart við-
skiptamönnum sínum og féll fátt verr en ágreiningur og óánægja, ef upp
komu, en oft vill brydda á slíku í fasteignaviðskiptum. Fláttskapur í viðskipt-
um var honum sem eitur, en hann mat því meir orðheldni, raunsæi og fyrir-
hyggju. Aldrei vissi ég hann viljandi gera á hlut nokkurs manns og honum var
fátt fjær skapi en ágengni. Ósjaldan fórnaði hann fé fremur en una ágrein-
ingi milli viðskiptamanna sinna.
Þótt Vagn væri öðrum mönnum kurteisari og hógværari, var hann einarð-
ur, ef því var að skipta og óhræddur að láta uppi skoðanir sínar. En prúð-
mennskan brást honum aldrei.
Vagn var harðgreindur maður og íhugull, hafði sjálfstæðar skoðanir á álita-
efnum, sem hann lét til sín taka, og hvikaði lítt frá þeim.
Vagn var félagslyndur, en laus við framagirni. Hann tranaði sér hvergi
fram og var því aldrei í fararbroddi á félagsmálasviði. En hann hlaut að vera
í fremstu röð í starfsgrein sinni, og er víst, að fáir hafa notið meira álits á
því sviði. Hann var ávallt vel metinn í hópi lögfræðinga, enda hafinn yfir allar
seyrur og viðsjár. Slíkir menn eru hverri starfsstétt þarfir og samfélaginu
nýtastir þegna. Slíkra manna er gott að minnast.
Vagn E. Jónsson var kvæntur glæsilegri konu, Laufeyju Hólm Sigurgarðs-
dóttur, kennara, Sturlusonar, og konu hans, Viktoríu Bjarnadóttur. Mat hann
konu sína mikils. Þau áttu tvö börn, Esther Brittu, kennara, og Atla, lögfræð-
ing, sem síðustu árin hefur unnið á skrifstofu föður síns og mun annast
rekstur hennar áfram. Bið ég honum velfarnaðar í því starfi og votta öllum
ástvinum Vagns samúð mína.
Gunnar M. Guðmundsson.
5