Tímarit lögfræðinga - 01.05.1976, Side 13
sögulegur atburður. Hefur yfirlýsingin verið þýdd á yfir 80 tungumál, og hafa
þær reglur, sem í henni felast, verið teknar upp í stjórnarskrár fjölmargra ríkja,
sem stofnuð hafa verið frá árinu 1948. Starf René Cassins í baráttunni fyrir
auknum mannréttindum í heiminum hefur því verið árangursríkt, og var það
ekki nema að vonum, að honum voru veitt friðarverðlaun Nobels á sjálfu
Mannréttindaárinu 1968.
René Cassin var kjörinn dómari í Mannréttindadómstóli Evrópu í Stras-
bourg við stofnun hans á árinu 1959, og varð hann síðar forseti dómsins og
sat þar sem dómari til dauðadags. í heimalandi sínu naut hann að sjálf-
sögðu mikillar virðingar sem lögfræðingur, og á því sviði voru honum einn-
ig falin mikilverðustu störf. Þannig var hann t.d. gerður að varaforseta Ríkis-
ráðsins (Conseil d'Etat) á árinu 1960.
Á árunum 1967—1972 starfaði ég sem dómari í Mannréttindadómstól
Evrópu í Strasbourg. Kynntist ég þá mörgum mætum mönnum frá hinum
ýmsu Evrópuþjóðum, sem dóminn skipuðu. Þar á meðal var René Cassin.
Vakti hann strax á sér athygli mína fyrir Ijúfmannlega og fágaða fram-
komu. Varð mér og strax Ijóst, hve þekking hans í alþjóðarétti og þá einkum
á sviði mannréttinda var yfirgripsmikil og víðtæk. Þrátt fyrir háa elli virtist
starfsorka hans og áhugi á starfinu óbilandi. Það leyndi sér heldur ekki,
að á meðal samdómenda og alls starfsfólks dómsins, naut hann mikillar
virðingar, enda hafa víst fáir menn fórnað nær öll sínu lífsstarfi í baráttu
fyrirfriði, réttlæti og mannréttindum.
Enda þótt René Cassin væri mikill hugsjónamaður, þá var hann þó um
leið raunsæismaður. Var honum það fullljóst, að ekki væru neinir möguleik-
ar á því að breyta manninum sjálfum. Hinsvegar væri það ómaksins vert að
reyna að breyta þeim aðstæðum, sem áhrif hafa á alla hegðun manna og
hugarfar. Með því að leggja áherslu á að breyta þessum aðstæðum mætti
vænta nýrra og betri tíma fyrir allt mannkyn.
René Cassin verður mér ógleymanlegur maður. Blessuð sé minning hans.
Sigurgeir Sigurjónsson.
7