Tímarit lögfræðinga - 01.05.1976, Qupperneq 33
Gjaldskrárnefnd var endurkjörin, en í henni eiga sæti: Gunnar Sæmunds-
son hdl, Jón Ólafsson hrl og Skúli J. Pálmason hrl, en til vara Jónas A5al-
steinsson hrl, Garðar Garðarsson hdl og Hilmar Ingimundarson hrl.
Örn Clausen hrl gerði grein fyrir störfum nefndar, sem undirbýr nýskipan
gjaldskrár félagsins.
Þá urðu miklar umræður um fyrirhugaðan ábyrgðarsjóð félagsins, en sam-
þykkt var að boða til sérstaks fundar um málið.
Samþykkt var að hækka árgjald félagsmanna í kr. 20.000.—.
Þá var svohljóðandi ályktun samþykkt:
„Aðalfundur Lögmannafélags Islands haldinn 26. mars 1976 telur það for-
sendu fyrir því að lögmenn og dómarar hvarvetna í heiminum geti sinnt
skyldustörfum sínum í starfi, að þeir geti sinnt þeim óhindraðir af valdhöf-
um í landi sfnu og lögmenn og dómarar geti í hvívetna í starfi sínu tekið
afstöðu án þess að eiga á hættu að sæta ofsóknum af hálfu valdhafa.
Því fordæmir fundurinn það ofbeldi sem lögmenn og dómarar hafa sætt
víða um heim vegna starfa sinna og skoðana og birst hafa m.a. í því að
lögmenn og dómarar hafa verið fangelsaðir og pyntaðir eða jafnvel horfið
sporlaust.
Þá fordæmir fundurinn ekki síður þær þvinganir, sem lögmenn og dóm-
arar hafa sætt á annan hátt, svo sem með missi stöðu eða starfsréttinda
vegna þess að þeir hafa ekki viljað beygja sig fyrir valdhöfum.
Fundurinn lýsir því yfir, að hann styðji þá baráttu, sem hefur þegar verið
hafin í þeim tilgangi að vekja athygli á ofsóknum þeim, sem lögfræðingar
hafa sætt víða um heim vegna starfs síns eða skoðana og vonar, að barátt-
an leiði til þess, að sem víðast fái dómarar og lögmenn að gegna starfi
sínu án þess að eiga á hættu að lenda í fangelsi eða sæta öðrum afarkostum
af hálfu valdhafa.“
Að kvöldi aðalfundardags var árshátíð félagsins haldin að Hótel Loftleiðum.
Ræðu kvöldsins flutti Jón E. Ragnarsson hrl, og Guðrún Á. Símonar
óperusöngkona söng. Fór hátíðin hið besta fram.
Brynjólfur Kjartansson.
27