Tímarit lögfræðinga - 01.05.1976, Qupperneq 42
André Gros (67) Frakkland 1982
Hardy Cross Dillard (73) Bandaríkin 1979
Louis Ignacio-Pinto (72) Benín 1979
Federico de Castro (72) Spánn 1979
Platon D. Morozov (69) Sovétríkin 1979
E. Jiménez Aréchaga (57) Uruguay 1979
Humphrey Waldock (71) Bretland 1982
Nagendra Singh (61) Indland 1982
José Maria Ruda (51) Argentína 1982
Hermann Mosler (63) V-Þýskaland 1985
Taslim Olawale Elias (61) Nígería 1985
Salah El Dine Tarazi (58) Sýrland 1985
Shigeru Oda (51) Japan 1985
Þess má að lokum geta, að meðalaldur hinna fimm nýkjörnu dómara er
rúmlega 581/2 ár, en núverandi dómara allra tæplega 64 ár.
Ólafur Egilsson.
AMNESTY INTERNATIONAL
Aðalfundur íslandsdeildar Amnesty International var haldinn að Hótel
Esju 2. desember sl., og fóru þar fram venjuleg aðalfundarstörf.
Fundurinn hófst á ávarpi herra Sigurbjörns Einarssonar biskups, sem er
félagi í samtökunum, en var sérstaklega beðinn að ávarpa fundinn. Var
mjög góður rómur gerður að ræðu hans.
Þá flutti formaður samtakanna, Björn Þ. Guðmundsson, skýrslu stjórnar.
Kom þar fram, að hið fyrsta starfsár hafði verið býsna atburðaríkt, en starf-
semin þó mótast af ýmsum byrjunarörðugleikum svo sem varðandi húsnæði,
skrifstofubúnað, fjármál og skipulagsmál. Frá stofnfundi, 14. september 1974,
hélt stjórnin 17 bókaða fundi og allmarga óformlega. Þrír almennir félags-
fundir voru haldnir á starfsárinu, 9. desember 1974, 15. maí 1975 og 12.
október s. á. Erfiðasta verkefni stjórnarinnar var að koma á virku hópstarfi,
sem er undirstaða starfsemi allra landsdeilda heildarsamtakanna. Fjórir
hópar hófu fyrst starf, en var fljótlega fækkað í tvo. Tóku Gísli J. Ástþórs-
son og Anna Atladóttir að sér forustuna í öðrum hópnum, en Ingi Karl Jóhann-
esson og síðar Jóna Lísa Þorsteinsdóttir í hinum. Komst starfið smám sam-
an í fastar skorður.
íslandsdeildin hefur skrifstofu að Hafnarstræti 11 og er hún opin reglu-
lega á mánudögum milli kl. 5 og 7. Geta menn þá komið, t.d. til að afla sér
gagna og upplýsinga. Ella geta félagar fengið þar aðgang með því að hafa
samband við einhvern stjórnarmanna. Síminn á skrifstofunni er 11200.
íslandsdeildin fær verkefni frá aðalstöðvunum í London, og eru þau aðal-
lega þrenns konar: 1. Verkefni fyrir starfshópa (group-action). 2. tilmæli um
36