Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.1978, Blaðsíða 5

Tímarit lögfræðinga - 01.08.1978, Blaðsíða 5
ÁRNI BJÖRNSSON Árni Björnsson héraðsdómslögmaður og lög- giltur endurskoðandi andaðist í Reykjavík hinn 24. júlí s.l. aðeins fimmtugur að aldri. Árni fæddist hinn 6. ágúst 1927 í Reykjavík, sonur hjónanna Björns E. Árnasonar Iögfræðings og löggilts endurskoðanda og Margrétar Ásgeirs- dóttur. Árni varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1947, en hóf að því loknu laga- nám í Háskóla íslands og lauk því námi vetur- inn 1953. Björn faðir Árna hafði frá árinu 1930 rekið eigin endurskoðunarskrifstofu, og að laganámi loknu hóf Árni störf á endurskoðunarskrifstofu föður síns. Störfuðu þeir þar saman, þar til Björn andaðist 23. nóvember 1967, en þá tók Arni við rekstri endurskoðunarskrifstofunnar, sem enn ber nafn föður hans. Þó að Árni yrði héraðsdómslögmaður hinn 2. júlí 1954, varð aðalstarf hans á sviði endurskoðunar, enda krafðist hinn umfangsmikli rekstur endurskoðun- arskrifstofunnar allra starfskrafta hans. Hefur fyrirtæki þeirra feðga frá fyrstu tíð verið meðal traustustu og virtustu endurskoðunarskrifstofa hér á landi. Hélt Árni vel merki föður síns á loft. Mun það vera einróma álit allra, er þekktu Árna, að hann hafi verið mikilsvirtur í starfi sínu, vel lærður, athugull, ráða- góður og hafi manna best leyst úr erfiðustu vandamálum. Þó að Árni væri hæglátur maður, sem lítið vildi hafa sig í frammi, var sóst eftir honum til margskonar trúnaðarstarfa. Hann var formaður Stúdentaráðs Háskóla íslands 1950—1951. Síðar starfaði hann mikið að málefnum Rauðakrossins og var sæmdur heiðursmerki félagsins 1975. Hann var skipaður af ráðherra í próf- nefnd löggiltra endurskoðenda og átti sæti þar um árabil, og ýmis trúnaðar- störf vann hann fyrir Félag löggiltra endurskoðenda, Lögfræðingafélagið og aðra aðila. Eftirlifandi eiginkona Árna er Ingibjörg Jónsdóttir, dóttir Jóns Loftssonar forstjóra og konu hans Brynhildar Þórarinsdóttur. Gengu þau Árni í hjóna- band 5. júní 1953. Börn þeirra eru fjögur: Björn Einar, Brynhildur Jóna, Ásgeir Þór og Jón Loftur. Það er tvímælalaust mikið skarð höggvið í hóp stéttarbræðra Árna, og hans er saknað í þeirra hópi. Sakir háttvísi í framkomu, léttrar lundar og kímnigáfu ávann hann sér vináttu margra manna, sem minnast hans með hlýjum hug. Helgi V. Jónsson. 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.