Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Síða 23

Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Síða 23
ið fram, að þegar atvik málsins gerðust, hafi þeir eigi verið starfsmenn hans í merkingu reglunnar um vinnuveitandaábyrgð. Hann hafi ein- ungis annast milligöngu um að útvega þá til að vinna ákveðið verk fyrir Geislahitun, sem greitt hafi þeim laun. Framburður framkvæmdastjóra Geislahitunar styður eindregið frásögn Ó af því, hver afskipti Ó vildi hafa af vinnunni. Vætti samverkamanns tjónþola hnígur í sömu átt. Svo sem fyrr getur, er tekið fram í Hrd. 1964, 268, að verkamennirnir hafi verið starfsmenn Ó, hann hafi ráðið þá til verksins, sagt þeim hvað til stæði, farið með þeim á staðinn og bent þeim á verkefnið. Allt þetta rennir stoðum undir bótaskyldu Ó samkvæmt vinnuveitandaábyrgð- arreglunni. Á móti mælir það, sem áður greinir um skipti Ó og Geisla- hitunar. Tjónþoli ber hins vegar, að honum hafi ekki verið kunnugt um, að hann og samverkamaður hans væru að vinna fyrir annan aðila en Ó. Af dómsforsendum virðist mega draga þá ályktun, að Ó hefði eigi verið talinn bótaskyldur, ef hann hefði áður en verkið hófst skýrt tj ón- þola frá samkomulagi sínu og Geislahitunar. Verður að telja eðlilegt, að Ó beri hallann af því, að honum tókst ekki að sanna, að tjónþoli hafi fallist á að fara í vinnu til annars aðila. Sönnunarbyrðin um að starfs- maður sé í vinnu hjá riýjum húsbónda, hvílir hér á þeim vinnuveitanda, sem starfsmaðurinn hefur verið í vinnu hjá (aðalhúsbónda). Að þessu leyti er aðstaða Ó svipuð stöðu Vélasjóðs í skurðgröfuslysinu (Hrd. 1963, 71). Vélasjóður varð að bera hallann af því, að í framkvæmd var mjög losaralega gerigið frá samningum um stöðu manna á gröfum sjóðsins. Samkvæmt því, sem nú hefur verið rakið, verður að álíta, að eðlilegt hefði verið að dæma Ó og Geislahitun in solidum til gi’eiðslu á bótum til verkamannsins, sem fyrir slysinu varð. Framkrafa Ó á hendur Geislahitun verður ekki rædd sérstaklega hér. Hrd. 1967, 1163. Ölvaður maður slasaðist, er hann féll við útidyr veitingahússins Klúbbsins i Rvík. Dyravörður í veitingahúsi synjaði manni nokkrum inngöngu og ýtti honum frá dyrum hússins. Maðurinn féll við og slasaðist. í bótamáli slasaða rökstuddi veitingahúseigandi sýknukröfu sína m.a. með því að dyravörðurinn hefði að vísu fengið greidda þókn- un úr hans hendi, en starf hans við dyravörslu hafi verið lög- reglustarf. Taldi veitirigahúsið, að hið opinbera bæri, sem fastur vinnuveitandi lögreglumanna, bótaábyrgð á hugsanlegum afglöp- um dyravarðarins í starfi. Meiri hluti Hæstaréttar tók ekki af- 69

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.