Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.11.1993, Qupperneq 44

Tímarit lögfræðinga - 20.11.1993, Qupperneq 44
A fengið greidda með veðskuldabréfi, sem væri óvenjulegur greiðslueyrir í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 6/1978. Af hálfu A var meðal annars á því byggt, að hann hefði greitt mun meira fyrir veðskuldabréfið en nam vanskilaskuld seljenda við þriðja aðila og að hann hefði verið í góðri trú. í héraðsdómi var fallist á kröfu þrotabúanna um riftun með þeim rökstuðningi að upplýst væri, að A greiddi veðskuld, sem var í vanskilum er hann yfirtók skuldina með kaupsamningi við E, M og V sf. Seljendur hefðu síðan greitt honum með veðskuldabréfi því, sem málið laut að. Ekki hefði komið fram hvenær ráðstöfunin hefði átt sér stað, en líta yrði svo á, að það hefði verið eftir útgáfudag bréfsins, þann 29. mars 1988. Greiðsla með kröfu á hendur þriðja aðila, svo skömmu fyrir frestdag, væri óvenjulegur greiðslu- eyrir í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 6/1978. I dómi Hæstaréttar var komist að öndverðri niðurstöðu og kröfu um riftun hafnað, en þar segir svo: ...Hér er um að rœða fasteignaviðskipti málsaðila og uppgjör kröfu vegna þeirra. Veðskuldabréf eru algengur og venjulegur greiðslueyrir í fasteignaviðskiptum. Hvort skuld telst greidd með óvenjulegum greiðslueyri í skilningi I. mgr. 54. gr. gjaldþrotalaga fer eftir atvikum og eðli viðskipta aðilja hverju sinni. Eins og á stóð verður ekki talið að umrætt veðskuldabréf, enda þótt það sé útgefið af þriðja aðila, hafi verið óvenjulegur greiðslueyrir í þessum viðskiptum þannig að riftanlegt sé samkx’œmt I. mgr. 54. gr. gjaldþrotalaga. ... NIÐURLAG Eins og segir í dómi Hæstaréttar, eru veðskuldabréf algengur og venjulegur greiðslueyrir í fasteignaviðskiptum. Sem dæmi má nefna, að algengt er sam- kvæmt kaupsamningum um fasteignir, að kaupandi greiði hluta kaupverðs með því að gefa út skuldabréf til seljanda, tryggt með veði í hinni seldu eign, svokölluð eftirstöðvabréf. Þá má einnig geta þess, að gjaman er verulegur hluti kaupverðs fasteigna greiddur með húsbréfum, eins og alkunna er. Krafa sú, er haldið var fram að efnd hefði verið með óvenjulegum greiðslueyri í dómsmáli því, sem hér er til umfjöllunar, var ekki samningsbundin greiðsla samkvæmt kaupsamningi aðila. Um var að ræða kröfu kaupanda til skaðabóta, þar sem hann varð að greiða vanskilaskuld seljenda sér óviðkomandi. Er ástæða til að draga í efa að venjulegt sé að bótakröfur af þessum toga séu greiddar með veðskuldabréfi seljanda á hendur þriðja aðila. Verður ekki séð að haft geti þýðingu í því sambandi hvemig tíðkanlegt er að seljendur og kaupendur fasteigna semji um gagnkvæmar efndir sín á milli í kaupsamn- ingum. Af dómi Hæstaréttar verður ekki ráðið með vissu hvað lá því til grundvallar að greiðsla skuldar, sem innt var af hendi með kröfu skuldara á hendur þriðja aðila, var ekki talin óvenjulegur greiðslueyrir þannig að riftanleg væri sam- kvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 6/1978. Virðist niðurstaða þessi ekki vera í samræmi við aðra dóma Hæstaréttar, sem gefið hafa bæði fyrir og eftir HRD 42
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.