Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 39

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 39
ekkert sannast um ætlaða kynferðislega misnotkun sambýlismanns móðurinnar á bami málsaðila. I dóminum kemur ennfremur fram, að þrátt fyrir ítarlegar athuganir sérfræðinga, en tveir þeirra höfðu verið dómkvaddir til að rannsaka aðilana og tengsl þeirra við bamið svo og að rannsaka tengsl og viðhorf bams- ins til sambýlismanns móðurinnar og þriðji sérfræðingurinn hafði rannsakað sambýlismanninn, tókst hvorki að sanna né afsanna hvort kæran á hendur sambýlismanninum um kynferðislega misnotkun á baminu væri rétt eða röng. Taldi dómurinn því að úrslit málsins gætu ekki oltið á því atriði. Ekki kom til þess að meta þyrfti hvernig unnt væri að tryggja öryggi barnsins þar sem faðir- inn fékk forsjá þess samkvæmt dóminum af öðrum ástæðum. Ef hins vegar rök hefðu verið fyrir því að móðirin fengi forsjána er ekki víst að öryggi barnsins hefði verið nægjanlega tryggt hjá henni a.m.k. ekki á meðan sambýlismaðurinn bjó á heimili hennar. Á hinn bóginn má ætla að væm ásakanir rangar hefðu vangaveltur um kynferðislega misnotkun verið óþarfar og jafnvel skaðlegar hagsmunum bamsins. I því tifelli hefðu ofangreind sönnunarvandamál getað bitnað illa á barninu. Dómstólar þurfa að sjálfsögðu að vera á varðbergi gegn slíku. Það er hins vegar ekki við dómstólana að sakast, fremur en í öðrum mál- um, þótt ekki takist að sanna tilteknar staðhæfingar. Ljóst er þó að máli skiptir að dómarar og aðrir sem að þessum málum koma geri sér grein fyrir þessu erfiða vandamáli og hve torvelt er að sjá við því. 4. LOKAORÐ Ég vil í lokin leyfa mér að halda því fram að góð reynsla hafi nú fengist af því að reka mál á sviði sifja- og barnaréttar fyrir dómstólum. Þó verður að hafa í huga að enn eiga eftir að koma fram ýmis álitaefni sem ekki liggur nú fyrir hvemig með verður farið. Hér að framan hefur verið reynt að varpa ljósi á vandamál sem einkum koma upp við úrlausnir mála þar sem deilt er um forsjá bama. Vandasamt getur verið að standa vel og rétt að málsmeðferðinni, sérstaklega þeim úrlausnarefnum sem lúta að gagnaöflun en af henni hefur dómarinn verulegan veg og vanda. Reynsluleysi dómara þarf nánari athugunar við. Sérstaklega er brýnt að skoða hvemig unnt verði að tryggja að dómarar fái menntun og þjálfun á þessu sviði. I meðferð forsjármála getur skipt verulegu máli að dómarar geti deilt reynslu með öðrum sem fjalla um slík mál, bæði öðrum dómumm og sérfræðingum sem í þessum málum vinna. Þá er rétt að benda á að reynsluleysi dómara er aðeins einn af mörgum þáttum sem hér er við að glíma. Vandamálin sem upp kunna að koma við meðferð for- sjármála geta verið af öðrum toga. Þau má stundum rekja til þess hve málin em vandasöm, aðgangur að sérfræðingum getur verið takmarkaður eða a.m.k. erfiður þar sem færustu sérfræðingamir em oft of uppteknir af öðmm verkum og loks að athuganir í málum em tímafrekar og tafir á málum geta bitnað á börnunum. Verður að líta svo á að dómstólar eigi ekki auðvelt með að sjá við þessum vandamálum. 281
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.