Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Side 4

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Side 4
Gera verður ráð fyrir að skoðanir framangreindra aðila á því sem refsi- vörslunni heyrir til hafi mótast af þeirri reynslu sem þeir hafa öðlast í áranna rás við dagleg störf og byggist a.m.k. að einhverju leyti á mati á því sem þeir telja að refsingarnar skili. En er þá einfaldlega hægt að segja að þessar skoðanir séu hinar einu réttu og eftir þeim beri að fara? Að sjálfsögðu ekki. Það verður eins og fyrri daginn að gjalda varhug við þeirri hættu sem ætíð vofir yfir að menn verði þannig samgrónir störfum sínum að þeir missi eða skorti heildarsýn yfir starfsvettvanginn. Ef hjólfarið er farið að ráða ferðinni en stefnir í ranga átt þarf eitthvað til þess að koma mönnum upp úr því og fá þá til að setja stefnuna á réttan áfangastað. Ritstjórinn og þingmaðurinn sem að framan er getið töluðu í nafni almenn- ings og kröfðust þyngri refsinga fyrir hans hönd. Það er alveg rétt að ýmsar raddir hafa heyrst á opinberum vettvangi um það að refsingar séu of vægar almennt eða fyrir tiltekin brot og fyrir hefur komið að fjölmiðlamenn hafa gert samanburð á refsingum, sem reyndar hefur borið það með sér að vera byggður vanþekkingu. Það er út í bláinn að ætla sér að bera einungis saman brot og refsingu og benda síðan á mismun á refsingum fyrir hinar ýmsu brotategundir. Það verður að skoða hvert mál frá upphafi til enda og öll þau atriði sem áhrif hafa á refsimatið, lögbundin og ólögbundin. Það er ekki hægt að ætlast til þess að almenningur geri þetta, en ekki hjálpar það honum til við að mynda sér marktæka skoðun á refsingum þegar fjölmiðlamenn, sem eru skoðanamótandi, gera sig bera að fáfræði, raunar hvað eftir annað. Það ber þó að taka skýrt fram að ekki er hægt að setja alla fjölmiðlamenn undir sama hatt að þessu leyti. Þeir sem við refsivörsluna fást forðast það flestir af eðlilegum ástæðum að taka þátt í umræðu af þessu tagi en ef til vill er það ekki réttlætanlegt að láta umræðuna afskiptalausa miklu lengur. Inn í umræðuna þarf að koma sú þekking sem nauðsynleg er til þess að skoðanamyndun byggist á staðreyndum en ekki tilfinningalegu mati fyrst og fremst þótt það verði eflaust áfram til staðar að einhverju marki sem ekkert er við að segja. Það sem að framan er sagt ber ekki að skilja svo að ekki eigi að líta til þess sem fram kemur í opinberri umræðu þótt það kunni að vera illa grundað, heldur er verið að reyna að benda á þá nauðsyn að sú umfjöllun geti átt sér stað sem nauðsynleg er til þess að mönnum sé kleift að mynda sér skoðun með ákveðnar staðreyndir í huga en ekki samkvæmt tilfinningunum einum saman. Þarna er ákveðinn vandi fyrir hendi sem bregðast þarf við með einhverjum hætti. í hópi dómara er um það rætt að athugandi sé að dómstólarnir ráði sér einhvers konar fjölmiðlafulltrúa sem hefði það hlutverk að koma fram fyrir þeirra hönd bæði er varðar dóma í einstökum málum og eins til að taka þátt í almennri umræðu. Þá er full ástæða til að hvetja prófessora og kennara í lögfræði og aðra fræði- menn á sviði lögfræðinnar að láta meira í sér heyra en verið hefur. Þetta gæti að einhverju marki leitt til þess að umræðan yrði ekki jafn einhæf og fordómafull og verið hefur og þar af leiðandi marktækari. 228
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.