Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Side 7

Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Side 7
TÍMARIT • • LOCFRÆÐINGA 1.HEFTI 48. ÁRGANGUR FEBRÚAR 1998 Sigurmar K. Albertsson: FORRÆÐISHYGGJA OG SJÁLFSTÆÐI Frumvarp til laga um lögmenn er nú til meðferðar á Alþingi. Gildandi lög eru að stofni til frá 1942 og auðvitað ófullkomin um margt þó svo þau hafi dugað allvel í tæpa sex áratugi. I frumvarpinu eru mörg nýmæli sem skipta lögmannastéttina miklu. Sum eru til bóta en í öðrum er um grundvallarbreytingar að ræða, breytingar sem lög- menn eru mjög ósáttir við. Helstu nýmælin eru að lögmönnum er ekki lengur skylt að eiga aðild að Lög- mannafélagi Islands, nýjar reglur eru um öflun málflutningsréttinda fyrir hér- aðsdómi, reglum um öflun málflutningsréttinda fyrir Hæstarétti er breytt og þær raunar að hluta þyngdar, afnuminn er réttur sem hefur fylgt „fjörutíumála flutn- ingi“ í héraði, einkaréttur til málflutningsstarfa er óbreyttur en réttur skyld- menna til málflutningsstarfa fyrir ættmenni sín er afnuminn, lögmenn geta stofnað félög um rekstur sinn og mætti áfram lengi telja. Mestu breytingar frá núverandi fyrirkomulagi eru fólgnar í þeim ákvæðum frumvarpsins er lúta að því hver eigi að hafa forræðið í málefnum lögmanna. í frumvarpi til laga um lögmenn er ráðherra og ráðuneyti dómsmála nefnt þrjátíu- ogfjórum sinnum. Ráðherra hefur allt vald um veitingu málflutningsréttinda og getur tekið þau til baka, hann veitir undanþágur, metur hvort opinbert starf varði réttindamissi, hann hefur eftirlit með fjárreiðum lögmanna og setur reglur um fjárvörslur, ræður yfir reglum um ábyrgðartryggingar, hann athugar heilsufar lögmanna ef þeir þurfa að loka stofum vegna heilsubrests, hann útvegar próf- nefndir vegna umsókna um héraðsdómslögmannsréttindi og auðvitað ákveður hann gjaldskrá fyrir öll þessi viðvik. Ráðherrann þarf líka að staðfesta siða- reglur sem lögmenn skulu setja sér og síðast en ekki síst og sem raunar er verst 1

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.